Ritrýnd handrit rannsakenda (postprint/AAM – author accepted manuscript) eru ykkar sköpun, ykkar verk. Ekki gefa það frá ykkur.
Myndbandið hér fyrir neðan frá cOAlitionS sýnir hvernig rannsakendur og vísindamenn geta varðveitt réttindi sín og tryggt opinn aðgang að rannsóknaniðurstöðum sínum.
Preprint (forprent), sem er handrit að grein en það er sú útgáfa sem send hefur verið til útgefanda en er enn óritrýnt og ekki tilbúið til birtingar í áskriftartímariti.
Postprint / accepted manuscript, sem er lokagerð handrits höfundar; handrit sem búið er að ritrýna, höfundar búnir að yfirfara og senda aftur til útgefanda til birtingar í áskriftartímariti.
Síðastliðin sjö ár hefur vísinda- og tæknisamfélagið fjórum sinnum gefið út yfirlýsingu þar sem skorað er á útgefendur vísindatímarita að gefa út rannsóknir tengdar tilteknum sjúkdómum í opnum aðgangi. Árið 2016 var það Zika, 2018 ebóla, árið 2020 COVID-19 og nú, árið 2022, eru það rannsóknir tengdar apabólu (monkeypox).
Það er alveg ljóst að tafarlaus opinn aðgangur að rannsóknum án getur flýtt fyrir viðbrögðum á alþjóðavísu hvað varðar lýðheilsu. Hingað til hafa útgefendur brugðist jákvætt við þessum beiðnum og gert viðeigandi rannsóknir aðgengilegar ókeypis. Til dæmis hafa Elsevier og Springer Nature sett um 200 þúsund greinar tengdar COVID inn á PubMed Central. Og það virðist líklegt að þeir, og margir aðrir útgefendur, muni nú bregðast við með því að gera apabólurannsóknir aðgengilegar. Lesa áfram „Lýðheilsa og opinn aðgangur: Þarf ekki að skipta um gír?“