Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Fréttir

Hugsaðu, kannaðu, sendu inn (think, check, submit)

Vefurinn ThinkCheckSubmit.org hjálpar vísindamönnum og rannsakendum að átta sig á hvaða tímaritum og útgefendum hægt er að treysta og forðast þannig svokölluð rányrkjutímarit. Vefurinn er alþjóðlegur og þverfaglegur og þar er hægt að skoða nk. tékklista á ýmsum tungumálum áður en tímarit er valið. Búið er að bæta við tékklista á íslensku og hann má finna…

Lesa meira : Hugsaðu, kannaðu, sendu inn (think, check, submit)

Opin vísindi og vegferð Svía

Svíar eru allnokkrum árum á undan Íslendingum hvað varðar stefnumörkun um opin vísindi og þó að þeirra vegferð sé hvorki hindrunar- né gallalaus, er fróðlegt fyrir Íslendinga að kynna sér þeirra stöðu. Í greininni „An Open Science Roadmap for Swedish Higher Education Institutions“  eftir Sabina Anderberg (Háskólanum í Stokkhólmi) er farið yfir stöðu Svía í…

Lesa meira : Opin vísindi og vegferð Svía

Ábendingar til íslenskra háskóla

Fyrir stuttu birtist pistill hér á síðunni um Edinborgarháskóla og háskólann í Cambridge og nálgun þeirra varðandi opinn aðgang sem væri vissulega forvitnilegt fyrir íslenska háskóla að skoða. Nú hefur cOAlition S tekið þetta skrefi lengra og rætt við Niamh Tumelty, yfirmann Open Research Services við University of Cambridge. Viðtalið má sjá í greininni:  How…

Lesa meira : Ábendingar til íslenskra háskóla

Skýrsla frá IAP um rányrkjutímarit og ráðstefnur

Út er komin skýrsla á vegum IAP (The InterAcademy Partnership) Science, Health, Policy sem ber heitið „Combatting Predatory Academic Journals and Conferences“ eða „Baráttan við rányrkjutímarit og ráðstefnur“. Útdráttur skýrslunnar er sannarlega verðug lesning fyrir alla rannsakendur og tengist einnig umræðunni um opinn aðgang. Í skýrslunni kemur fram að svokölluð rányrkju- eða gervitímarit eru talin…

Lesa meira : Skýrsla frá IAP um rányrkjutímarit og ráðstefnur

Breskir háskólar og stefnur um opinn aðgang

Háskólinn í Edinborg gaf út nýja stefnu varðandi rannsóknarafurðir og höfundarétt í september 2021 fyrir rannsakendur sína sem  tók gildi 1. janúar 2022: Research Publications & Copyright Policy. Háskólinn í Cambridge setti sömuleiðis nýverið af stað tilraunaverkefni, Rights retention pilot, til eins árs sem felur að mestu leyti í sér sömu stefnu og hjá Háskólanum…

Lesa meira : Breskir háskólar og stefnur um opinn aðgang

Háskólinn í Utrecht með nýja OA stefnu

Ný stefna um opinn aðgang hjá háskólanum í Utrecht, Hollandi. Framkvæmdastjórn háskólans í Utrecht hefur samþykkt nýja OA-stefnu um útgáfu rannsóknaafurða í skólanum: Gert er ráð fyrir að vísindamenn skólans gefi út allt sitt efni (tímaritsgreinar, bókakafla og bækur)  í opnum aðgangi. Með því að gera niðurstöður rannsókna sýnilegri eykst gagnsæi, notagildi og endurnýting þessara…

Lesa meira : Háskólinn í Utrecht með nýja OA stefnu

Skoskir háskólar stofna sína eigin OA bókaútgáfu

Háskólabókasöfn í Skotlandi vinna nú að því að koma á laggirnar bókaútgáfu sem tileinkuð er opnum aðgangi, þ.e. Scottish Universities Open Access Press. Útgáfan verður í eigu þeirra háskólastofnana sem taka þátt en þær eru alls 18. Stefnt er á að bjóða upp á hagkvæma leið til útgáfu án hagnaðarsjónarmiða. Í upphafi verður áherslan mest…

Lesa meira : Skoskir háskólar stofna sína eigin OA bókaútgáfu

Háskóli Íslands og Landsbókasafn efla opin vísindi

Nýr og endurskoðaður samstarfssamningur var undirritaður á milli Háskóla Íslands og Landbókasafns-Háskólabókasafns fyrir skömmu, sem varðaði m.a. opin vísindi og opinn aðgang: „Meðal áhersluatriða er að efla samstarf samningsaðila, vinna að markmiðum stjórnvalda um opinn aðgang að rannsóknaritum og rannsóknagögnum og að safnið komi á fót rannsóknaþjónustu fyrir háskólasamfélagið, m.a. til að miðla upplýsingum um…

Lesa meira : Háskóli Íslands og Landsbókasafn efla opin vísindi

Ráðstefnan Open Science Conference 2022, 8. – 10. mars sl.

Ráðstefnan The Open Science Conference 2022, 8. – 10. mars sl., var 9. alþjóðlega ráðstefnan af þessum toga á vegum the Leibniz Research Alliance Open Science. Ráðstefnan er tileinkuð hreyfingunni um opin vísindi (e. open science) og er mikilvægur vettvangur fyrir rannsakendur, upplýsingafræðinga, sérfræðinga og annarra hagsmunaaðila til að ræða þróun mála varðandi „opin vísindi“.…

Lesa meira : Ráðstefnan Open Science Conference 2022, 8. – 10. mars sl.

Fréttir af ráðstefnunni Paris Open Science Conference 4. – 5. febrúar 2022

Ráðstefnan Paris Open Science Conference  var haldin dagana 4. – 5. febrúar sl. Alls sóttu ráðstefnuna um 2000 manns en hún fór að þessu sinni alfarið fram á netinu. Meðal fyrirlesara voru franskir ráðherrar, forsvarsmenn háskóla í Evrópu, embættismenn frá UNESCO, forsvarsmenn rannsóknastofnana og vísinda í Evrópu og margir fleiri. Ráðstefnan var yfirgripsmikil. Mikið var…

Lesa meira : Fréttir af ráðstefnunni Paris Open Science Conference 4. – 5. febrúar 2022