Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Fréttir

Í tilefni alþjóðlegrar viku opins aðgangs 24. – 28. október 2022

Nú stendur yfir alþjóðleg vika opins aðgangs, 24. – 28. október. Að þessu sinni er þema vikunnar „loftslagsréttlæti“ (e. Climate Justice). Landvernd skýrir hugtakið á þessa leið: Hugtakið loftslagsréttlæti gefur til kynna að loftslagsmál eru ekki bara umhverfismál, heldur verður baráttan við loftslagshamfarir alltaf að taka mið af mannréttindum, félagslegu réttlæti og jafnrétti kynja. Opinn…

Lesa meira : Í tilefni alþjóðlegrar viku opins aðgangs 24. – 28. október 2022

Science Europe: Conference on Open Science 18. og 19. október 2022

Hin árlega ráðstefna Science Europe, Conference on Open Science. verður haldin dagana 18. og 19. október 2022. Ráðstefnunni er ætlað að leiða saman leiðtoga innan stofnana, vísindamenn/rannsakendur á öllum stigum síns ferils og sérfræðinga á þessu sviði.  Vert er að hvetja alla þá sem hafa áhuga á þessum málum að fylgjast með. Skráning er ókeypis…

Lesa meira : Science Europe: Conference on Open Science 18. og 19. október 2022

Ráðstefna um opin vísindi

Samtökin Science Europe skipuleggja ráðstefnu um opin vísindi  18. – 19. október nk. Ráðstefnan er bæði staðbundin og í streymi frá Brussel. Tímapunkturinn nú er mikilvægur: COVID-19 heimsfaraldurinn hefur lagt áherslu á mikilvægi opinna rannsókna og samvinnu og nokkrar nýlegar skýrslur hafa knúið áfram innleiðingu stefnu um opin vísindi (Open science) og nauðsyn þess að…

Lesa meira : Ráðstefna um opin vísindi

Nýr sjóður fyrir OA útgáfu í Háskólanum í Cambridge

Háskólinn í Cambridge hefur stofnað nýjan sjóð til að styrkja rannsakendur við skólann til að gefa út rannsóknarniðurstöður sínar í opnum aðgangi, hafi þeir ekki aðgang að öðrum fjárhagslegum stuðningi. Þannig geta vísindamenn notað sjóðinn til að greiða svokölluð APC gjöld (article processing charge) ef nauðsyn krefur, fyrir rannsóknir sínar í tímaritum sem veita opinn…

Lesa meira : Nýr sjóður fyrir OA útgáfu í Háskólanum í Cambridge

Hvíta húsið og opinn aðgangur

Fréttir varðandi opinn aðgang frá Hvíta húsinu í Washington: Fimmtudaginn 25. ágúst 2022 uppfærði skrifstofa vísindi og tækni Hvíta hússins stefnu sína um niðurstöður rannsókna. Nú þarf strax að gera niðurstöður rannsókna sem studdar eru af almannafé aðgengilegar bandarískum almenningi án birtingatafa (embargo) og kostnaðar. Allar stofnanir hins opinbera munu innleiða þessar uppfærðu leiðbeiningar að…

Lesa meira : Hvíta húsið og opinn aðgangur

Lýðheilsa og opinn aðgangur: Þarf ekki að skipta um gír?

Síðastliðin sjö ár hefur vísinda- og tæknisamfélagið fjórum sinnum gefið út yfirlýsingu þar sem skorað er á útgefendur vísindatímarita að gefa út rannsóknir tengdar tilteknum sjúkdómum í opnum aðgangi. Árið 2016 var það Zika,  2018 ebóla, árið 2020 COVID-19 og nú, árið 2022, eru það rannsóknir tengdar apabólu (monkeypox). Það er alveg ljóst að tafarlaus…

Lesa meira : Lýðheilsa og opinn aðgangur: Þarf ekki að skipta um gír?

Gagnasafnið DASH frá Harvard

DASH – Digital Access to Scholarship at Harvard er gagnasafn frá Harvard sem varðveitir greinar og efni eftir fræðimenn skólans; efni sem þeir hafa valið að gera aðgengilegt í opnum aðgangi.  Gagnasafnið er hýst af bókasafni Harvard háskóla.  Í flestum tilvikum gildir höfundaleyfið CC BY 4.0 sem þýðir að allir mega aðlaga efnið að vild…

Lesa meira : Gagnasafnið DASH frá Harvard

„Opin þekking“ – leiðir til uppbyggingar og þróunar

Áhrif opins aðgangs á þekkingu, ekki bara innan háskólastigsins heldur einnig hjá hinu opinbera og í stefnumótun stofnana, má í stórum dráttum þakka viðleitni tveggja hópa þ.e. upplýsingafræðinga og rannsakenda. Framganga þeirra í tengslum við opinn aðgang  (e. OA), opna menntun (e. OE) og opin vísindi (OS) hefur umbreytt kennslu rannsókna, framkvæmd þeirra og miðlun.…

Lesa meira : „Opin þekking“ – leiðir til uppbyggingar og þróunar

BerlinUP – nýr útgefandi bóka og tímarita í opnum aðgangi

BerlinUP –  Berlin Universities Publishing er nýr útgefandi bóka og tímarita í opnum aðgangi. Að útgáfunni stendur Bandalag háskóla í Berlín,  Berlin University Alliance. Bókasöfn eftirfarandi háskóla styðja framtakið: Gefnar verða út bækur og tímarit frá háskólunum innan bandalagsins, en einnig er BerlinUP ráðgefandi um útgáfu í opnum aðgangi. Mynd: Historic and modern buildings at…

Lesa meira : BerlinUP – nýr útgefandi bóka og tímarita í opnum aðgangi

Mannréttindayfirlýsing SÞ frá 1948 og vísindi

Þegar rætt er um opin vísindi og opinn aðgang er ekki úr vegi að rifja upp Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna sem samþykkt var hinn 10. desember 1948 (yfirlýsingin á ensku). Grein nr. 27 fjallar að hluta um vísindi. Grein nr. 27 á íslensku: Vangaveltur og spurningar um vísindi og tækni út frá mannréttindasjónarmiðum (Nancy Flowers, 1998)

Lesa meira : Mannréttindayfirlýsing SÞ frá 1948 og vísindi

Opinn aðgangur og hremmingar heimsins

Ef eitthvað má læra af heimsfaraldri og kreppuástandi í kjölfarið er það án efa hversu miklu máli skiptir að hafa opinn aðgang að upplýsingum. Þegar samfélög og hagkerfi heimsins verða fyrir slíkum skakkaföllum sem COVID-19 hefur valdið, þarf aðgangur að staðreyndum og tölum að vera greiður. Við þurfum að vita hvað er að gerast í…

Lesa meira : Opinn aðgangur og hremmingar heimsins