Fréttir
Einföld leið til að nálgast löglegar útgáfur vísindagreina
Miðlun á vísindaefni er að breytast mikið um þessar mundir. Æ fleiri háskólar og samlög um rafrænar áskriftir að tímaritum hafa sagt upp samningum sínum um við Elsevier og aðra stóra útgefendur á vísindalegu efni, nú síðast frændur okkar Svíar. Ástæður eru síhækkandi áskriftargjöld og há þjónustugjöld vegna birtinga (Article Processing Charges). Þrátt fyrir að Evrópusambandið…
Lesa meira : Einföld leið til að nálgast löglegar útgáfur vísindagreina
Opinn aðgangur, hvað er það?
Á morgunkorni Upplýsingar, félags bókasafns- og upplýsingafræðinga þann 25. október síðasliðinn hélt Sigurgeir Finnsson sérfræðingur á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni erindið: Opinn aðgangur, hvað er það?: um opinn aðgang, Opin vísindi og ægivald útgefanda. Glærur Sigurgeirs Við sama tækifæri hélt Anna Sigríður Guðnadóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur á heilbrigðisvísindabókasafni LSH og HÍ, erindið „OpenAIRE verkefni Evrópusambandisins, hvað gengur það…
Sögulegt yfirlit um opinn aðgang
Jean Claude Guédon prófessor við Montréal háskóla í Kanada og einn af höfundum Búdapestyfirlýsingarinnar, hélt nú á dögunum sérdeilis gott erindi um sögu opins aðgangs í samhengi við sögu og útgáfu vísindatímarita. Erindið var haldið á ráðstefnu í París sem Alþjóðamiðstöð ISSN stóð fyrir nú í apríl. Í erindinu er farið vandlega yfir sögu prentaðra…
Opin vísindi – varðveislusafn fyrir vísindagreinar
Ein leið til útgáfu í opnum aðgangi er birting með grænu leiðinni (e. green open access). Handrit að grein er birt og gert aðgengilegt í varðveislusafni eins og Opnum vísindum, samhliða birtingu annars staðar. Höfundur sendir varðveislusafninu ýmist óritrýnt handrit (Pre-print) eða ritrýnt lokahandrit (Post-print/Accepted manuscript) sem tilbúið er til birtingar. Einstaka sinnum er hægt að birta endanlega…
Lesa meira : Opin vísindi – varðveislusafn fyrir vísindagreinar
Þjónustugjöld vegna birtinga (APC) og birtingatafir útgefanda
Þjónustugjöld vegna birtinga (Article Processing Charge eða APC) eru gjöld sem útgefendur rukka höfunda fyrir birtingu í opnum aðgangi. Þessi gjöld eru mismunandi eftir útgefendum. Birting er ýmist í áskriftartímariti, og er þá viðkomandi grein í opnum aðgangi en aðrar greinar í tímariti geta verið í lokaðar (Hybrid Gold Access) eða tímariti sem allt er…
Lesa meira : Þjónustugjöld vegna birtinga (APC) og birtingatafir útgefanda
Norræn samlög um rafrænar áskriftir styðja Fimm meginreglur LIBER um samningaviðræður við útgefendur
Á fundi stjórnarnefndar Landsaðgangs að rafrænum áskriftum í desember 2017 var samþykkt að styðja yfirlýsingu norrænna samlaga um að styðja Fimm meginreglur LIBER um samningaviðræður við útgefendur. LIBER er Samband evrópskra rannsóknabókasafna (e. Association of European Research Libraries). Norræn samlög um rafrænar áskriftir styðja Fimm meginreglur LIBER um samningaviðræður við útgefendur Öll norræn samlög um…
Allt um OA
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn hefur nú aftur tekið við vefnum openaccess.is/opinnadgangur.is og mun sjá um rekstur hans í framtíðinni. Vefnum er ætlað að vera upplýsingaveita um allt sem viðkemur opnum aðgangi bæði á Íslandi sem og erlendis. Ýmsar upplýsingar um opinn aðgang munu birtast á vefnum, sér í lagi um þróun mála erlendis, en ýmislegt…
Undirritun yfirlýsingar um opinn aðgang – OA2020
Þann 9. nóvember 2017 undirritaði Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn Expression of Interest in the Large-scale Implementation of Open Access to Scholarly Journals. Yfirlýsingin byggir á Berlínaryfirlýsingunni um opinn aðgang (2003), sem safnið undirritaði árið 2012, og tekur þannig undir að opinn aðgangur sé að rannsóknaniðurstöðum sem unnar eru fyrir opinbert fé, auk þess sem menningarstofnanir veiti…
Lesa meira : Undirritun yfirlýsingar um opinn aðgang – OA2020
Hvað er opinn aðgangur
Markmið opins aðgangs (Open access – OA) er að niðurstöður rannsókna sem fjármagnaðar eru af opinberu fé séu aðgengilegar á rafrænu formi með eins víðtækum og einföldum hætti og kostur er og nýtanlegar sem flestum án endurgjalds. Höfundar- eða birtingarréttur breytist ekki við útgáfu í opnum aðgangi. Opinn aðgangur stuðlar að því að efla vísinda- og…