Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Opin vísindi

Viðtal: Opin vísindi og opinn aðgangur í Svíþjóð

Vert er að benda á athyglisvert viðtal frá 11. september 2023 við Wilhelm Widmark, forstöðumann bókasafns háskólans í Stokkhólmi og framkvæmdastjóri EOSC (European Open Science Cloud). Í viðtalinu er fjallað um stöðu opinna vísinda og opins aðgangs í Svíþjóð og nálgun Svía gagnvart því markmiði að ná 100% opnum aðgangi. Wilhelm fjallar um mikilvægi þess…

Lesa meira : Viðtal: Opin vísindi og opinn aðgangur í Svíþjóð

Fyrirlestur 25. september 2023: Cost/Benefit of Open Access and Open Science

Þann 25. september verður fyrirlestur kl. 12 í Þjóðminjasafninu sem nefnist Cost/Benefit of Open Access and Open Science.  Fyrirlesari er Bernd Pulverer, yfirmaður útgáfumála hjá EMBO (European Molecular Biology Organization) og aðalritstjóri EMBO Reports. Bernd hefur verið leiðandi í umræðunni um Open Access og Open Science í Evrópu og tók m.a. þátt í DORA yfirlýsingunni…

Lesa meira : Fyrirlestur 25. september 2023: Cost/Benefit of Open Access and Open Science

Open Science Festival 31. ágúst 2023 – Rotterdam, Hollandi

Hollendingar hafa gert marga góða hluti varðandi opin vísindi/opinn aðgang undanfarin ár og það hefur verið fróðlegt að fylgjast með þeim. Þann 31. ágúst 2023 var haldið sk. Open Science Festival í Rotterdam sem nú er orðinn árviss viðburður. Hægt er að sjá og heyra upptöku frá opnun viðburðarins „Plenary Opening“ og  „Open Science Together…

Lesa meira : Open Science Festival 31. ágúst 2023 – Rotterdam, Hollandi

Yfirlýsingar ráðherraráðs ESB og evrópskra stofnana

Ráð Evrópusambandsins (oft nefnt ráðherraráð ESB) hefur gefið út drög að niðurstöðum ráðsins varðandi hágæða, gagnsæja, opna, trausta og réttláta útgáfu fræðilegs efnis: Draft Council conclusions on high-quality, transparent, open, trustworthy and equitable scholarly publishing (4. maí 2023). Í framhaldinu  hafa nokkrar evrópskar stofnanir sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu: Advancing a publicly owned and not-for-profit…

Lesa meira : Yfirlýsingar ráðherraráðs ESB og evrópskra stofnana

Handbók um opin vísindi frá Hollandi

Samtök hollenskra háskólabókasafna ásamt Þjóðbókasafni Hollands (UKB), háskólar Hollands (UNL), Hollenska þekkingarmiðstöðin og varðveislusafn fyrir rannsóknir (DANS) og hollenska rannsóknarráðið (NWO), hafa gefið út hagnýtan leiðarvísi um opin vísindi sérstaklega ætlaðan ungum rannsakendum: Open Science: A Practical Guide for Early-Career Researchers.

Lesa meira : Handbók um opin vísindi frá Hollandi

Opin vísindi sem námskeið á háskólastigi?

„Opin vísindi eru einfaldlega góð vísindi á stafrænum tímum“. Þetta er tilvitnun í  Dr. Heidi Seibold sem starfar á eigin vegum við að leiðbeina rannsakendum sem vilja gera rannsóknarniðurstöður sínar opnar og aðgengilegar. Hún leggur áherslu á að ef ætlunin sé að ala upp góða vísindamenn, þurfi að koma opnum vísindum inn í kennsluskrá háskóla.…

Lesa meira : Opin vísindi sem námskeið á háskólastigi?

USA: Árið 2023 er tileinkað opnum vísindum

Þann 11. janúar sl. tilkynnti Hvíta húsið ásamt 10 bandarískum alríkisstofnunum  og bandalagi rúmlega 85 háskóla ásamt fleiri stofnunum – að árið 2023 yrði ár opinna vísinda. Á árinu 2023 verður fagnað ávinningi og árangri opinna vísinda. Markmiðið er að hvetja fleiri vísindamenn til að tileinka sér opin vísindi. Árangur árs opinna vísinda mun byggja…

Lesa meira : USA: Árið 2023 er tileinkað opnum vísindum

Verkfærakista UNESCO fyrir opin vísindi

Á vef UNESCO er að finna verkfærakistu sem hönnuð er til að styðja við framkvæmd tilmæla UNESCO um opin vísindi. Verkfærakistan samanstendur af leiðbeiningum, upplýsingum, gátlistum og bæklingum. Verkfærin eru lifandi skjöl sem reglulega eru uppfærð til að endurspegla þróun og stöðu innleiðingar tilmælanna. Sum verkfæranna eru þróuð í samvinnu við UNESCO Open Science samstarfsaðila…

Lesa meira : Verkfærakista UNESCO fyrir opin vísindi

Science Europe: Conference on Open Science 18. og 19. október 2022

Hin árlega ráðstefna Science Europe, Conference on Open Science. verður haldin dagana 18. og 19. október 2022. Ráðstefnunni er ætlað að leiða saman leiðtoga innan stofnana, vísindamenn/rannsakendur á öllum stigum síns ferils og sérfræðinga á þessu sviði.  Vert er að hvetja alla þá sem hafa áhuga á þessum málum að fylgjast með. Skráning er ókeypis…

Lesa meira : Science Europe: Conference on Open Science 18. og 19. október 2022

„Opin þekking“ – leiðir til uppbyggingar og þróunar

Áhrif opins aðgangs á þekkingu, ekki bara innan háskólastigsins heldur einnig hjá hinu opinbera og í stefnumótun stofnana, má í stórum dráttum þakka viðleitni tveggja hópa þ.e. upplýsingafræðinga og rannsakenda. Framganga þeirra í tengslum við opinn aðgang  (e. OA), opna menntun (e. OE) og opin vísindi (OS) hefur umbreytt kennslu rannsókna, framkvæmd þeirra og miðlun.…

Lesa meira : „Opin þekking“ – leiðir til uppbyggingar og þróunar

Opinn aðgangur og hremmingar heimsins

Ef eitthvað má læra af heimsfaraldri og kreppuástandi í kjölfarið er það án efa hversu miklu máli skiptir að hafa opinn aðgang að upplýsingum. Þegar samfélög og hagkerfi heimsins verða fyrir slíkum skakkaföllum sem COVID-19 hefur valdið, þarf aðgangur að staðreyndum og tölum að vera greiður. Við þurfum að vita hvað er að gerast í…

Lesa meira : Opinn aðgangur og hremmingar heimsins