Verkfærakista UNESCO fyrir opin vísindi

Á vef UNESCO er að finna verkfærakistu sem hönnuð er til að styðja við framkvæmd tilmæla UNESCO um opin vísindi. Verkfærakistan samanstendur af leiðbeiningum, upplýsingum, gátlistum og bæklingum. Verkfærin eru lifandi skjöl sem reglulega eru uppfærð til að endurspegla þróun og stöðu innleiðingar tilmælanna.

Sum verkfæranna eru þróuð í samvinnu við UNESCO Open Science samstarfsaðila eða með viðræðum við og innleggi frá meðlimum UNESCO vinnuhópa um opin vísindi.

Efnið er aðgengilegt á eftirfarandi slóð:
https://www.unesco.org/en/natural-sciences/open-science/toolkit

Þar er m.a. að finna eftirfarandi efni:

Leiðbeiningar (Guides):

      • Að byggja upp getu fyrir opin vísindi
      • Að þróa stefnu fyrir opin vísindi
      • Fjármögnun opinna vísinda
      • Að styrkja opna vísindainnviði fyrir alla

Upplýsingar (Factsheets):

      • Að skilja opin vísindi
      • Að bera kennsl á rányrkjutímarit og ráðstefnur

Gátlistar (Checklists):

      • Gátlisti fyrir háskóla um innleiðingu tilmæla UNESCO um opin vísindi
      • Gátlisti fyrir útgefendur í opnum aðgangi um innleiðingu tilmæla UNESCO um opin vísindi

Bæklingar (Brochures):

      • UNESCO tilmæli um opin vísindi
      • Kynning á tilmælum UNESCO um opin vísindi