Að forðast rányrkjutímarit
Stutt og gagnlegt myndband frá The Royal Society: „Publishing your research? How to avoid predatory journals“.
Stutt og gagnlegt myndband frá The Royal Society: „Publishing your research? How to avoid predatory journals“.
Í greininni Choosing a journal for your research: Checklist for researchers and librarians eru góðar leiðbeiningar fyrir bæði rannsakendur og upplýsingafræðinga um hvernig best sé að velja viðeigandi tímarit fyrir rannsóknaniðurstöður. Val á tímariti er mikilvægt mál fyrir rannsakendur sem bæði vilja tryggja tímanlega og víðtæka miðlun rannsóknaniðurstaðna sinna sem og að uppfylla kröfur sem stofnanir…
Lesa meira : Val á tímariti fyrir rannsóknaniðurstöður: Gátlisti
Mikið af fróðlegu efni varð til í alþjóðlegri viku opins aðgangs 23. – 29. október 2023. Á meðal fyrirlesara sem fram komu á viðburðum vikunnar, var Helgi Sigurbjörnsson, upplýsingafræðingur á Bókasafni Menntavísindasviðs HÍ en hann hélt erindi sem bar heitið „Að bera kennsl á rányrkjutímarit“. Fyrirlesturinn var einkar fróðlegur og leiðbeiningar og fróðleikur sem þar…
Lesa meira : Að bera kennsl á rányrkjutímarit – upptaka og glærur
Hvernig er hægt að þekkja traust tímarit frá hinum sem hafa á sér vafasamt orð og flokkast mögulega sem rányrkjutímarit? Hér fyir neðan er mjög gott myndband þar sem Katherine Stephan, upplýsingafræðingur í rannsóknaþjónustu við Liverpool John Moores University og meðlimur TCS Committee (Think – Check – Submit).
Ný grein í tímaritinu Nature ber yfirskriftina „Predatory journals entrap unsuspecting scientists“ eftir Chérifa Boukacem-Zeghmouri. Þetta er holl lesning fyrir rannsakendur sem eru að fóta sig í útgáfuumhverfinu sem fræðimenn búa við. Rányrkjutímarit eru orðin útbreidd innan vísindasamfélagsins. Þessi tímarit innheimta gjöld af höfundum, birta óritrýndar greinar, sóa tíma og peningum vísindamanna og grafa undan…
Hvað er rányrkjutímarit (e. predatory journal) og hvernig er hægt að þekkja þau frá vönduðum tímaritum? Hér fyrir neðan er ágætis myndband frá vefnum Thinkchecksubmit.org sem fer yfir helstu atriði sem gott er að skoða. Sjá einnig umfjöllun okkar Um rányrkjutímarit.
Út er komin skýrsla á vegum IAP (The InterAcademy Partnership) Science, Health, Policy sem ber heitið „Combatting Predatory Academic Journals and Conferences“ eða „Baráttan við rányrkjutímarit og ráðstefnur“. Útdráttur skýrslunnar er sannarlega verðug lesning fyrir alla rannsakendur og tengist einnig umræðunni um opinn aðgang. Í skýrslunni kemur fram að svokölluð rányrkju- eða gervitímarit eru talin…
Lesa meira : Skýrsla frá IAP um rányrkjutímarit og ráðstefnur