Greinasafn fyrir merki: Demanta opinn aðgangur

Hollendingar og demantaleiðin

Í Hollandi er hafið verkefnið „Enhancing Diamond Open Access in the Netherlands“ til að efla og styrkja fræðilega útgáfu á vegum bókasafna og annarra, sem ekki er rekin í hagnaðarskyni. Þetta verkefni er í samræmi við skýrsluna „Versterking ondersteuning van diamant open access in Nederland“ á vegum hollensku háskólanna (UNL).

Þessi ráðstöfun er í takt við markmiðin sem sett eru fram í metnaðarfullri áætlun National Plan Open Science 2030, þar sem áhersla er lögð á fjárfestingar í opnum innviðum til að hlúa að vistkerfi fræðilegra samskipta.

Erasmus háskólinn í Rotterdam leiðir verkefnið í samvinnu við UKB* og UNL og er markmiðið að  styrkja demantaleiðina (Diamond Open Access -DOA) með samþættri nálgun, þar á meðal að koma á fót innlendri miðstöð sérfræðinga, efla getu á vettvangi DOA útgáfu og innleiða mælingar á henni.

*UKB er samstarfsvettvangur hollenskra háskólabókasafna og The Royal Library of the Netherlands.

Alþjóðleg ráðstefna nr. 2 um Diamond Open Access

Komin er út skýrsla um alþjóðlega ráðstefnu nr. 2 um  Diamond Open Access,  sem haldin var 25. – 26. október 2023 í Toluca, Mexíkó. Ráðstefnuna héldu Science Europe, COAlition S, OPERAS og franska rannsóknamiðstöðin (ANR) og var hún jafnframt hluti vikulangs alþjóðlegs þings um Diamond Open Access 23. – 27. október.

Á þessu alþjóðlega þingi komu saman 688 þátttakendur frá 75 löndum; þar á meðal vísindamenn, ritstjórar, fulltrúar háskóla, aðilar frá stofnunum sem fjármagna rannsóknir, fulltrúar bókasafna, fræðafélaga og stefnumótendur.
Lesa áfram Alþjóðleg ráðstefna nr. 2 um Diamond Open Access

CRAFT-OA verkefnið og „demantaleiðin“

Demantaleiðin (Diamond Open Access) er opinn aðgangur þar sem engin þjónustugjöld vegna birtinga leggjast á höfunda eða styrktveitendur. Höfundur heldur að jafnaði höfundarréttinum í stað þess að framselja réttinn til útgefanda eins og í hefðbundinni útgáfu. Fjölmörg ritrýnd gæðatímarit eru í opnum aðgangi.

Háskólinn í Göttingen mun leiða athyglisvert ESB-verkefni með 23 samstarfsaðilum í 14 Evrópulöndum frá og með janúar 2023. Markmiðið er að efla og þróa tímaritaútgáfu stofnana í Evrópu með því að nota líkan sem kennt hefur verið við „Diamond Open Access“. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur styrkt verkefnið „Creating a Robust Accessible Federated Technology for Open Access (CRAFT-OA)“ til þriggja ára og veitti samtals 4,8 milljónum evra.

Með því að bjóða upp á sértæka tæknilega þjónustu og verkfæri fyrir allan feril tímaritaútgáfu gerir verkefnið staðbundnum og svæðisbundnum kerfum og þjónustuaðilum í þessum geira kleift að auka og bæta fagmennsku varðandi innihald, þjónustu og kerfi. Þannig verður auðveldara að tengja þjónustu þeirra við önnur upplýsingakerfi í vísindum. Einnig mun þetta auðvelda starf vísindamanna og fræðimanna sem taka þátt í þessu líkani. Lesa áfram CRAFT-OA verkefnið og „demantaleiðin“