Greinasafn fyrir merki: Demanta opinn aðgangur

Diamond Discovery Hub

DDH (Diamond Discovery Hub) er listi yfir evrópska útgefendur og fræðitímarit í demanta opnum aðgangi. DDH heyrir undir þjónustu EDCH (European Diamond Discovery Hub) og til að komast á listann, þurfa tímarit sannanlega að uppfylla viðmið EDCH um demantaútgáfu; hafa varanlegt auðkenni, vera vísindatímarit og í opnum aðgangi með opnum afnotaleyfum, taka engin gjöld, vera opið öllum höfundum og í samfélagslegri eigu. Enn sem komið er nær listinn einungis yfir fræðileg tímarit, ekki ritraðir og bækur

Aukinn stuðningur við demantaútgáfu í Evrópu

Nýju samstarfsverkefni, AEGIS-OA (Advancing Diamond Open Access Publishing) hefur verið hleypt af stokkunum til að styðja við demanta opinn aðgang. Verkefnið er styrkt af Evrópusamandinu undir Horizon Europe áætluninni og er ætlað að byggja upp gagnsæi, sjálfbærni og fyrsta flokks innviði fyrir opinn aðgang að fræðilegri útgáfu, án kostnaðar fyrir höfunda eða lesendur.

Áhersla er lögð á að samhæfa útgáfu opinna bóka og vísindatímarita, efla og þjálfa hæfni útgáfufólks og byggja upp samstarfsnet. Í verkefninu taka þátt 24 samstarfsaðilar með víðtæka reynslu á sviði stofnanaútgáfu, demantaútgáfu og opinna vísinda, frá 16 Evrópulöndum.

AEGIS-OA byggir á EDCH (European Diamond Capacity Hub) og mun þróa það áfram, frá því að leggja aðaláherslu á tímarit, yfir í útgáfu bóka í demanta opnum aðgangi. Markmiðin með verkefninu eru að auka gæði og þróa DOAS (Diamond Open Acccess Standard) fyrir bækur og innleiða vottunarkerfi.

 

Staðall um útgáfu í demanta opnum aðgangi

Stefna evrópusambandsins og margra þeirra sjóða sem styrkja rannsóknir er í þá átt að niðurstöður rannsókna sem styrktar eru birtist í opnum aðgangi. Raunar er stefnan nú þegar að ganga lengra og þess krafist að niðurstöður rannsókna sem styrktar eru af almannafé eigi að birta í demanta opnum aðgangi. Þetta útgáfuform byggir á því að hvorki lesandi né höfundur þurfi að greiða fyrir útgáfu og lestur rannsóknarniðurstaðnanna. Evrópusambandið fjármagnaði Diamas verkefnið sem var ætlað að kortleggja demanta opna útgáfu í ERA (European research area), bæta gæði þessa útgáfuforms og ýta undir samvinnu með því að byggja samfélag utan um útgáfu í demanta opnum aðgangi á ERA svæðinu. Einn afrakstur þessa samstarfs er DOAS staðallinn, eða Diamond open access standard sem er ætlað að hjálpa útgefendum við að bæta gæði útgáfunnar, skilgreina almennilega hvað demanta opinn aðgangur merkir og skjóta styrkari stoðum undir útgáfustarfsemina.

Staðallinn tekur á 7 grunnþáttum vísindalegrar útgáfu

  1. Fjármögnun
  2. Löglegt eignarhald, hlutverk og stjórnskipan útgáfunnar
  3. Opin vísindi
  4. Ritstjórn, gæði hennar og rannsóknarsiðferði
  5. Tæknileg skilvirkni þjónustu
  6. Sýnileika, miðlun, markaðssetningu og áhrif
  7. Jöfnuð, fjölbreytileika, inngildingu og tilverurétt (EDIB ), fjöltyngi og jafnrétti kynjanna.

Þannig er til dæmis farið fram á það í staðlinum að eignarhald útgáfunnar sé gagnsætt og í eigu fræðasamfélagsins, fjármögnun hennar sé kortlögð til meðallangs tíma og allar upplýsingar um afnotaleyfi á efni útgáfunnar komi skýrt fram á vefsíðum útgáfunnar. Staðalinn má lesa hér, en auk hans er mögulegt fyrir útgefendur að taka sjálfspróf úr staðlinum sem gefur þá góða mynd af því hvar hægt er að bæta útgáfuhætti. Sjálfsprófið má taka hér.