Opin vísindi og vegferð Svía

 Svíar eru allnokkrum árum á undan Íslendingum hvað varðar stefnumörkun um opin vísindi og þó að þeirra vegferð sé hvorki hindrunar- né gallalaus, er fróðlegt fyrir Íslendinga að kynna sér þeirra stöðu.

Í greininni „An Open Science Roadmap for Swedish Higher Education Institutions“  eftir Sabina Anderberg (Háskólanum í Stokkhólmi) er farið yfir stöðu Svía í dag og hvert þeir vilja stefna. Einnig kemur skýrt fram hvar skórinn kreppir og hvað þurfi að gera til að styrkja þeirra vegferð.

Lesa áfram Opin vísindi og vegferð Svía →

Ábendingar til íslenskra háskóla

Fyrir stuttu birtist pistill hér á síðunni um Edinborgarháskóla og háskólann í Cambridge og nálgun þeirra varðandi opinn aðgang sem væri vissulega forvitnilegt fyrir íslenska háskóla að skoða.

Nú hefur cOAlition S tekið þetta skrefi lengra og rætt við Niamh Tumelty, yfirmann Open Research Services við University of Cambridge. Viðtalið má sjá í greininni:  How to make it right: a Rights Retention Pilot by the University of Cambridge ahead of shaping a full institutional policy.

Í lok viðtalsins var Niamh  spurður um þrjú helstu ráðin fyrir aðra háskóla sem hyggjast taka upp svipaða stefnu um opinn aðgang: Svör hans voru á þessa leið:
Lesa áfram Ábendingar til íslenskra háskóla →

Bretland og opinn aðgangur að fræðiritum

Það er forvitnilegt að kynna sér hvað önnur Evrópulönd eru að gera varðandi opinn aðgang að fræðilegu efni. Í nýlegri grein er fjallað um stefnu Breta varðandi opinn aðgang að fræðilegum bókum sem styrktar eru af UKRI – UK Research and Innovation funding council.

UKRI kynnti nýjustu stefnu sína um opinn aðgang 6. ágúst 2021. Stefnan tekur til allra rannsókna sem ráðið styrkir og er stórt skref í átt til opins aðgang innan fræðasamfélagsins. Frá 1. janúar 2024 eiga öll fræðirit að vera gefin út í opnum aðgangi þó að eins árs birtingatöf sé leyfð. Lesa áfram Bretland og opinn aðgangur að fræðiritum →