Komin er út ársskýrsla „Plan S“ fyrir 2022.
Plan S er áætlun á vegum cOAlition S, alþjóðlegu bandalagi rannsóknasjóða og styrktaraðila rannsókna um fullan opinn aðgang að vísindaefni. Áætluninni var hleypt var af stokkunum í september 2018.
Í formála ársskýrslunnar segir eftirfarandi (lauslega þýtt):
„Hjá cOAlition S erum við staðráðin í að flýta fyrir umskiptum yfir í opinn aðgang. Sem alþjóðleg samtök stofnana sem fjármagna rannsóknir ásamt framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, höfum við verið að útfæra stefnu og verkfæri síðan 2018 til að ná markmiði Plan S. Í þessari ársskýrslu kynnum við yfirlit starfsemi okkar árið 2022 og færum nýjustu fréttir af stefnum okkar, verkfærum og þjónustu. Við gerum einnig grein fyrir stuðningi okkar við ýmis útgáfumódel og leggjum áherslu á framtak einstakra fjármögnunaraðila cOAlition S. Í síðasta kafla má sjá sýnishorn af áætlunum okkar fyrir árið 2023 þar sem við veltum fyrir okkur fræðilegum samskiptum til framtíðar….“