Allt um OA

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn hefur nú aftur tekið við vefnum openaccess.is/opinnadgangur.is  og mun sjá um rekstur hans í framtíðinni. Vefnum er ætlað að vera upplýsingaveita um allt sem viðkemur opnum aðgangi bæði á Íslandi sem og erlendis. Ýmsar upplýsingar um opinn aðgang munu birtast á vefnum, sér í lagi um þróun mála erlendis, en ýmislegt er að gerast í málefnum opins aðgangs og útgáfumála um þessar mundir. Einnig eru á vefnum upplýsingar um tilurð og sögu opins aðgangs, útskýringar á hugtökum og tenglar á erlendar upplýsingasíður um opinn aðgang. Einnig hefur verið opnaður twitter aðgangurinn @openaccess_is s og hægt verður að fylgjast með fréttastreymi þaðan beint af forsíðu openaccess.is.

Hvað er opinn aðgangur

Markmið opins aðgangs (Open access – OA) er að niðurstöður rannsókna sem fjármagnaðar eru af opinberu fé séu aðgengilegar á rafrænu formi með eins víðtækum og einföldum hætti og kostur er og nýtanlegar sem flestum án endurgjalds. Höfundar- eða birtingarréttur breytist ekki við útgáfu í opnum aðgangi. Opinn aðgangur stuðlar að því að efla vísinda- og fræðastarf en tilgangurinn er að hraða framþróun í vísindastarfi í allra þágu. Efni í opnum aðgangi er m.a. rannsóknarniðurstöður, rannsóknargögn, lýsigögn og stafræn framsetning texta og myndefnis (úr stefnu Landsbókasafns um opinn aðgang og opin vísindi)