Allar færslur eftir Gunnhildur K. Björnsdóttir

Stefna um opin og ábyrg vísindi

Drög að stefnu um opin vísindi er nú komin í samráðsgátt. Stefnunni er ætlað að stuðla að öflugu vísindastarfi, sterkum innviðum og samstarfi til að byggja upp þekkingar- og nýsköpunardrifið samfélag þar sem hugað er að ábyrgð og öryggi.

Frestur til að senda athugasemdir er til 28. apríl 2026


Nánari upplýsingar úr samráðsgátt:

,,Opin vísindi stuðla að öflugu vísindastarfi, sterkum innviðum og innlendu og alþjóðlegu samstarfi til að byggja upp þekkingar- og nýsköpunardrifið samfélag. Samfélagslegt mikilvægi opinna vísinda felst í því að þau styrkja traust, lýðræði og gæði ákvarðana með því að gera þekkingu aðgengilegri og gagnsærri. Opin og ábyrg vísindi eru hornsteinn stefnu stjórnvalda um vísindi, tækniþróun og nýsköpun til 2035, sem ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun gaf út í júní 2025.

Stefnan skiptist í tvo hluta, annars vegar opin vísindi og hins vegar ábyrg vísindi. Í opnum vísindum er lögð áhersla á opinn aðgang að fræðilegum birtingum, opin gögn, opnar rannsóknaaðferðir, opin kennslugögn, opna rannsóknainnviði, borgaravísindi og vísindamiðlun. Tilmæli UNESCO um opin vísindi frá 2021 eru m.a. höfð til hliðsjónar við gerð stefnunnar. Stefnumótun um ábyrg vísindi er ætlað að stuðla að heilindum í ástundun rannsókna með siðferðileg og fagleg viðmið að leiðarljósi, að öryggi rannsóknaumhverfisins og ábyrgri alþjóðavæðingu, vernda akademískt frelsi og lágmarka áhættu með markvissum öryggisráðstöfunum.

Stefnan tekur fyrst og fremst til aðila sem eru fjármagnaðir fyrir opinbert fé, s.s. með rekstrarfé eða styrkjum úr opinberum sjóðum. Háskólum og opinberum rannsóknastofnunum, Landsbókasafni Íslands og opinberum vísindasjóðum ásamt umsýsluaðilum eru falin hlutverk samkvæmt stefnunni.

Stefnan gildir fyrir tímabilið 2026-2029 og heildarmat á áhrifum hennar verður unnið á seinni hluta árs 2029.“

SciFree tímaritalistinn

Landsaðgangur að rafrænum áskriftum hefur tekið  SciFree tímaritalistann í notkun.

SciFree gerir rannsakendum kleift að finna á einfaldan hátt fræðitímarit sem falla undir samninga Landsaðgangs við útgefendur, um birtingar greina í opnum aðgangi án endurgjalds (APC) eða með afslætti.  

Innleiðing SciFree gerir upplýsingar um útgáfusaminga mun aðgengilegri fyrir höfunda. Með SciFree má fletta upp einstaka tímaritum, útgefendum,  ISSN númerum eða eftir efni og fá með skjótum hætti, upplýsingar um skilmála, afsláttarkjör og afnotaleyfi. 

Samningar hafa verið gerðir við eftirtalda útgefendur: Elsevier, Karger, Sage og Springer Nature. Sjá nánar hér

Samningar við útgefendur gera fræðimönnum kleift að birta greinar í opnum aðgangi án kostnaðar

Landsaðgangur að rafrænum áskriftum (hvar.is) hefur gert samninga (Transformative Agreements) við fjóra alþjóðlega útgefendur: Elsevier, Springer Nature, Sage og Karger. Samningarnir gera íslenskum fræðimönnum kleift að birta greinar í opnum aðgangi án þess að greiða birtingagjöld, í fjölmörgum blönduðum tímaritum, og hjá Karger einnig í tímaritum sem eru alfarið í opnum aðgangi.

Helstu atriði samninganna:

  • Elsevier (2026–2028): Gjaldfrjálsar birtingar í blönduðum tímaritum með árlegu hámarki (119 greinar 2026, 127 greinar 2027 og 136 greinar 2028). 
  • Springer Nature: Höfundar geta birt gjaldfrítt í blönduðum tímaritum með takmörkuðum fjölda birtinga á ári (45–47 greinar 2026–2028). 
  • Sage (til ársloka 2026): Ótakmarkaður fjöldi gjaldfrjálsra birtinga í blönduðum tímaritum og afsláttur af birtingagjöldum í opnum aðgangi samkvæmt gylltu leiðinni.
  • Karger (2025–2027): Niðurfelling birtingagjalda bæði í blönduðum og alfarið opnum tímaritum, án takmarkana á fjölda birtinga.

 

Nánar upplýsingar