Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

opinn aðgangur

Ný opinber stefna um opin og ábyrg vísindi

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, hefur samþykkt fyrstu heildstæðu stefnu Íslands um opin og ábyrg vísindi. Stefnan gildir fyrir tímabilið 2026–2029 og setur skýran ramma um opið og ábyrgt vísindastarf í samræmi við alþjóðleg viðmið og starfsvenjur. Stefnan byggir á þeirri grundvallarhugmynd að þekking sem verður til fyrir opinbert fé sé sameiginleg auðlind og…

Lesa meira : Ný opinber stefna um opin og ábyrg vísindi

Diamond Discovery Hub

DDH (Diamond Discovery Hub) er listi yfir evrópska útgefendur og fræðitímarit í demanta opnum aðgangi. DDH heyrir undir þjónustu EDCH (European Diamond Discovery Hub) og til að komast á listann, þurfa tímarit sannanlega að uppfylla viðmið EDCH um demantaútgáfu; hafa varanlegt auðkenni, vera vísindatímarit og í opnum aðgangi með opnum afnotaleyfum, taka engin gjöld, vera…

Lesa meira : Diamond Discovery Hub

Aukinn stuðningur við demantaútgáfu í Evrópu

Nýju samstarfsverkefni, AEGIS-OA (Advancing Diamond Open Access Publishing) hefur verið hleypt af stokkunum til að styðja við demanta opinn aðgang. Verkefnið er styrkt af Evrópusamandinu undir Horizon Europe áætluninni og er ætlað að byggja upp gagnsæi, sjálfbærni og fyrsta flokks innviði fyrir opinn aðgang að fræðilegri útgáfu, án kostnaðar fyrir höfunda eða lesendur. Áhersla er…

Lesa meira : Aukinn stuðningur við demantaútgáfu í Evrópu

Samningar við útgefendur gera fræðimönnum kleift að birta greinar í opnum aðgangi án kostnaðar

Landsaðgangur að rafrænum áskriftum (hvar.is) hefur gert samninga (Transformative Agreements) við fjóra alþjóðlega útgefendur: Elsevier, Springer Nature, Sage og Karger. Samningarnir gera íslenskum fræðimönnum kleift að birta greinar í opnum aðgangi án þess að greiða birtingagjöld, í fjölmörgum blönduðum tímaritum, og hjá Karger einnig í tímaritum sem eru alfarið í opnum aðgangi. Helstu atriði samninganna:…

Lesa meira : Samningar við útgefendur gera fræðimönnum kleift að birta greinar í opnum aðgangi án kostnaðar

Birtingar Háskóla Íslands og opinn aðgangur

Samantekt yfir þróun fræðilegra birtinga hjá Háskóla Íslands á undanförnum árum, með áherslu á stöðu opins aðgangs og útgáfu í ritrýndum alþjóðlegum gæðatímaritum. Tölulegar upplýsingar byggja á gögnum úr Scopus (SciVal), Web of Science (InCite)og OpenAlex, sem til samans geta gefið heildarmynd af stöðu birtinga. Tölur í ársbyrjun 2026 sýna að Háskóli Íslands hefur sterka…

Lesa meira : Birtingar Háskóla Íslands og opinn aðgangur

Open Research Europe

Framkvæmdastjórn ESB hefur hleypt af stokkunum vefnum Open Research Europe. Þar er útgáfuvettvangur fyrir fræðilegar greinar og rit sem eru afrakstur styrkja tengdum Horizon 2020, rammaáætlun ESB fyrir rannsóknir og nýsköpun 2014-2020 og Horizon Europe.

Lesa meira : Open Research Europe