
Nýju samstarfsverkefni, AEGIS-OA (Advancing Diamond Open Access Publishing) hefur verið hleypt af stokkunum til að styðja við demanta opinn aðgang. Verkefnið er styrkt af Evrópusamandinu undir Horizon Europe áætluninni og er ætlað að byggja upp gagnsæi, sjálfbærni og fyrsta flokks innviði fyrir opinn aðgang að fræðilegri útgáfu, án kostnaðar fyrir höfunda eða lesendur.
Áhersla er lögð á að samhæfa útgáfu opinna bóka og vísindatímarita, efla og þjálfa hæfni útgáfufólks og byggja upp samstarfsnet. Í verkefninu taka þátt 24 samstarfsaðilar með víðtæka reynslu á sviði stofnanaútgáfu, demantaútgáfu og opinna vísinda, frá 16 Evrópulöndum.
AEGIS-OA byggir á EDCH (European Diamond Capacity Hub) og mun þróa það áfram, frá því að leggja aðaláherslu á tímarit, yfir í útgáfu bóka í demanta opnum aðgangi. Markmiðin með verkefninu eru að auka gæði og þróa DOAS (Diamond Open Acccess Standard) fyrir bækur og innleiða vottunarkerfi.