Ný opinber stefna um opin og ábyrg vísindi

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, hefur samþykkt fyrstu heildstæðu stefnu Íslands um opin og ábyrg vísindi. Stefnan gildir fyrir tímabilið 2026–2029 og setur skýran ramma um opið og ábyrgt vísindastarf í samræmi við alþjóðleg viðmið og starfsvenjur.

Stefnan byggir á þeirri grundvallarhugmynd að þekking sem verður til fyrir opinbert fé sé sameiginleg auðlind og með opnum aðgangi að rannsóknaniðurstöðum, gögnum og aðferðum megi bæta nýtingu opinbers fjármagns, auka gagnsæi og samfélagsleg áhrif rannsókna. Leiðarljósið er: eins opin og mögulegt er, en eins lokuð og nauðsyn krefur“.

Í frétt frá Stjórnarráði Íslands kemur fram að opin vísindi geti aukið endurnýtanleika og áreiðanleika rannsókna, dregið úr tvíverknaði og stuðlað að hraðari nýsköpun. Opinn aðgangur að þekkingu auðveldi jafnframt samstarf þvert á stofnanir, fræðigreinar og landamæri og geti styrkt getu samfélagsins til að takast á við áskoranir á sviði heilbrigðis-, loftslags- og menntamála.

Samþykkt stefnunnar er mikilvægt framfaraskref fyrir opinn aðgang og opin vísindi á Íslandi. Hún skapar sameiginlegan ramma fyrir stjórnvöld, háskóla, rannsóknastofnanir og fjármögnunaraðila og undirstrikar mikilvægi þess að rannsóknir og þekking sem fjármögnuð er af almenningi séu eins aðgengilegar og unnt er.