Greinasafn fyrir flokkinn: Óflokkað

Framtíð útgáfu og stefnu um opinn aðgang

Útgefandinn MIT Press hefur gefið út ítarlega skýrslu sem fjallar um hvernig stefnur um opinn aðgang móta rannsóknir og hvað þarf til að hámarka jákvæð áhrif þeirra á vistkerfi rannsókna.

Skýrslan ber heitið „Access to Science & Scholarship 2024: Building an Evidence Base to Support the Future of Open Research Policy. Hún er afrakstur vinnustofu sem styrkt var af National Science Foundation og haldin var í Washington D.C., í höfuðstöðvum American Association for the Advancement of Science 20. september 2024.

Vefnámskeið frá Elsevier

Útgefandinn Elsevier býður upp á ókeypis vefnámskeið fyrir rannsakendur á vef sínum Researcher Academy. Námskeiðin eru af ýmsum toga og má þar nefna m.a.

  • Tips for writing grant applications: a funder perspective
  • Successful research grant applications – getting it right
  • Gen AI use in the research workflow
  • How to locate key publications
  • How to find relevant and authoritative research
  • Make your data findable- It’s Not FAIR! Improving Data Publishing Practices in Research
  • Make your data accessible -It’s Not FAIR! Improving Data Publishing Practices in Research
  • Og margt fleira…

 

https://researcheracademy.elsevier.com/

Skýringamyndir og höfundaréttur – afnotaleyfi

Greinin Why Thousands of Studies May be in Copyright Limbo af vef Plagiarismtoday.com https://www.plagiarismtoday.com/ fjallar um mikilvægt efni varðandi skýringamyndir/teiknngar og höfundarétt/afnotaleyfi.

Sagt er frá birtingu rúmlega 9000 tímaritsgreina í opnum aðgangi sem innihéldu skýringamyndir sem mögulega eru birtar undir röngu afnotaleyfi. Myndir þessar voru búnar til með því að nota BioRender og virtust falla undir afnotaleyfið CC-BY eins og sjálfar greinarnar. Lesa áfram Skýringamyndir og höfundaréttur – afnotaleyfi