Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Evrópa

Aukinn stuðningur við demantaútgáfu í Evrópu

Nýju samstarfsverkefni, AEGIS-OA (Advancing Diamond Open Access Publishing) hefur verið hleypt af stokkunum til að styðja við demanta opinn aðgang. Verkefnið er styrkt af Evrópusamandinu undir Horizon Europe áætluninni og er ætlað að byggja upp gagnsæi, sjálfbærni og fyrsta flokks innviði fyrir opinn aðgang að fræðilegri útgáfu, án kostnaðar fyrir höfunda eða lesendur. Áhersla er…

Lesa meira : Aukinn stuðningur við demantaútgáfu í Evrópu

Evrópsk miðstöð um demantaútgáfu – „diamond open access“

Þann 15. janúar 2025 var hleypt af stokkunum evrópskri miðstöð um sk. demantaútgáfu: European Diamond Capacity Hub (EDCH) í Madrid. OPERAS, grunnstoð rannsóknarinnviða fyrir opin fræðileg samskipti í félagsvísindum og hugvísindum, mun sjá um fjármálahliðina. Demantaútgáfa er módel að fræðilegri útgáfu sem tekur engin gjöld af höfundum eða lesendum og þar sem efnistengdir þættir útgáfunnar eru…

Lesa meira : Evrópsk miðstöð um demantaútgáfu – „diamond open access“

Hollendingar vilja breytta nálgun varðandi opinn aðgang

Hollendingar eru iðulega í fararbroddi hvað varðar vangaveltur um opinn aðgang, Í mars 2024 hittust um 50 manns frá ýmsum háskólum í Hollandi, öðrum stofnunum og löndum í sk. Open Science Retreat og lögðu saman krafta sína í vikulangt hugarflug um opinn aðgang. Í stuttu máli hafa menn ekki lengur trú á að sk. „transformative…

Lesa meira : Hollendingar vilja breytta nálgun varðandi opinn aðgang

Bresk hugveita hvetur til umbóta í fræðlegri útgáfu

Breska hugveitan UK Day One hvetur til umbóta í fræðilegri útgáfu svo að spara megi allt að 30 milljónir punda árlega. Þetta kemur fram í skýrslunni Reform Academic Publishing to Unblock Innovation, sem skrifuð er af   Sanjush Dalmia and Jonny Coates sem báðir tilheyra UK Day One. Think tank urges academic publishing reform to ‘save…

Lesa meira : Bresk hugveita hvetur til umbóta í fræðlegri útgáfu

Þýskaland og opinn aðgangur (OA)

Þýskaland hefur ekki samræmda stefnu um opinn aðgang á landsvísu, en OA menning er þar samt sem áður vel á veg komin. Mikið er um frumkvæði stofnana og samtaka sem sem styðja OA og þróun öflugra áætlana í þessum efnum. Landið er leiðandi í alþjóðlegu samstarfi og samvinnu á milli stofnana. Nálgunin er í þá…

Lesa meira : Þýskaland og opinn aðgangur (OA)

„Að reiða sig á áhrifastuðla til að meta vísindamenn er einfaldlega óvísindalegt“

„Að reiða sig á áhrifastuðla til að meta vísindamenn er einfaldlega óvísindalegt“ er haft eftir Dr. Toma Susi. Dr. Toma Susi er dósent við háskólann í Vínarborg í Austurríki. Hann telur að 95% af rannsóknum sem hann hefur framkvæmt síðan hann lauk doktorsprófi árið 2011 hafi verið birtar í opnum aðgangi. Hann hefur tileinkað sér aðferðir opinna…

Lesa meira : „Að reiða sig á áhrifastuðla til að meta vísindamenn er einfaldlega óvísindalegt“

Írland: Aðgerðaáætlun írskra stjórnvalda um opnar rannsóknir 2022-2030

Hér er hægt að kynna sér Aðgerðaáætlun írskra stjórnvalda um opnar rannsóknir 2022-2030. Henni er ætlað að vera vegvísir fyrir framkvæmd opinna rannsókna á Írlandi, útlista markmið og samræma aðgerðir til stuðnings innlendu rannsóknaumhverfi svo styrkja megi opnar rannsóknaraðferðir. Áætlunin verður uppfærð með reglulegu millibili til að útfæra nánar aðgerðir sem til þarf. Reynt verður…

Lesa meira : Írland: Aðgerðaáætlun írskra stjórnvalda um opnar rannsóknir 2022-2030

Breyttar áherslur varðandi mat rannsókna á Spáni

Spánn hyggst að gera umbætur á rannsóknamati sínu fyrir vísindamenn. Það er ANECA – La Agencia Nacional de Evaluación y Acreditación sem sett hefur fram nýjar tillögur. Hingað til hefur einungis verið miðað við birtingu greina í tímaritum með háan áhrifastuðul þegar vísindamenn eru metnir með tilliti til starfsframa. Samkvæmt nýju tillögunum verða rannsakendur metnir…

Lesa meira : Breyttar áherslur varðandi mat rannsókna á Spáni

Burt með birtingagjöldin

Styrkveitendur rannsókna sem eru aðilar að áætluninni Plan S hafa beðið  rannsóknageirann um endurhugsa núverandi módel varðandi opinn aðgang og birtingagjöld (e. APC – article processing charges) sem þeir segja að virki ekki. Styrkveitendur krefjast tafarlauss opins aðgangs að rannsóknaafurðum sem þeir hafa stutt. Hópurinn tilkynnti þann 27. júní 2023 að stofnaður yrði vinnuhópur til…

Lesa meira : Burt með birtingagjöldin

Yfirlýsingar ráðherraráðs ESB og evrópskra stofnana

Ráð Evrópusambandsins (oft nefnt ráðherraráð ESB) hefur gefið út drög að niðurstöðum ráðsins varðandi hágæða, gagnsæja, opna, trausta og réttláta útgáfu fræðilegs efnis: Draft Council conclusions on high-quality, transparent, open, trustworthy and equitable scholarly publishing (4. maí 2023). Í framhaldinu  hafa nokkrar evrópskar stofnanir sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu: Advancing a publicly owned and not-for-profit…

Lesa meira : Yfirlýsingar ráðherraráðs ESB og evrópskra stofnana

ESB: Tafarlaus opinn aðgangur að fræðigreinum

Svíar eru í forsæti ráðs Evrópusambandsins um þessar mundir og gáfu frá sér yfirlýsingu varðandi opinn aðgang í kjölfar umræðu meðal meðal ráðherra rannsókna. Rannsóknargreinar ESB ríkja ættu að vera aðgengilegar tafarlaust með opnum leyfum , segja Svíar. „Það að gera fræðilega útgáfu aðgengilega öllum með hraði stuðlar að hágæða rannsóknum“, sögðu Svíar 8. febrúar…

Lesa meira : ESB: Tafarlaus opinn aðgangur að fræðigreinum

„Opin þekking“ – leiðir til uppbyggingar og þróunar

Áhrif opins aðgangs á þekkingu, ekki bara innan háskólastigsins heldur einnig hjá hinu opinbera og í stefnumótun stofnana, má í stórum dráttum þakka viðleitni tveggja hópa þ.e. upplýsingafræðinga og rannsakenda. Framganga þeirra í tengslum við opinn aðgang  (e. OA), opna menntun (e. OE) og opin vísindi (OS) hefur umbreytt kennslu rannsókna, framkvæmd þeirra og miðlun.…

Lesa meira : „Opin þekking“ – leiðir til uppbyggingar og þróunar