Kominn er út gátlisti frá UNESCO sem er er hluti af UNESCO Open Science Toolkit og gerður til að styðja við innleiðingu tilmæla UNESCO um opin vísindi.
Tékklistinn er gerður í samstarfi við Open Access Scholarly Publishing Association (OASPA) fjölbreytt samfélag samtaka sem stunda opna fræðimennsku. Markmiðið er að veita útgefendum sem gefa út í opnum aðgangi hagnýta aðstoð til að skilja tilmæli UNESCO betur með því að varpa ljósi á vissa mikilvæga hluti sem eiga við um slíka útgefendur.