NASA og opinn hugbúnaður
NASA gefur út mikið magn af opnum hugbúnaði, þar á meðal úrval af mismunandi hugbúnaði úr verkefnum sem snerta m.a. stjörnufræði, jarðvísindi o.fl.
NASA gefur út mikið magn af opnum hugbúnaði, þar á meðal úrval af mismunandi hugbúnaði úr verkefnum sem snerta m.a. stjörnufræði, jarðvísindi o.fl.
Ritrýnd handrit rannsakenda (postprint/AAM – author accepted manuscript) eru ykkar sköpun, ykkar verk. Ekki gefa það frá ykkur. Myndbandið hér fyrir neðan frá cOAlitionS sýnir hvernig rannsakendur og vísindamenn geta varðveitt réttindi sín og tryggt opinn aðgang að rannsóknaniðurstöðum sínum. Hjálpargögn frá cOAlitionS
Komin er út ársskýrsla „Plan S“ fyrir 2022. Plan S er áætlun á vegum cOAlition S, alþjóðlegu bandalagi rannsóknasjóða og styrktaraðila rannsókna um fullan opinn aðgang að vísindaefni. Áætluninni var hleypt var af stokkunum í september 2018. Í formála ársskýrslunnar segir eftirfarandi (lauslega þýtt): „Hjá cOAlition S erum við staðráðin í að flýta fyrir umskiptum…
Hvað er rányrkjutímarit (e. predatory journal) og hvernig er hægt að þekkja þau frá vönduðum tímaritum? Hér fyrir neðan er ágætis myndband frá vefnum Thinkchecksubmit.org sem fer yfir helstu atriði sem gott er að skoða. Sjá einnig umfjöllun okkar Um rányrkjutímarit.
Eitt af því sem blómstrað hefur undanfarin ár, er útgáfa kennslubóka í opnum aðgangi í ýmsum löndum. Það hefur sparað nemendum ómældar fjárhæðir og veitt háskólum möguleika á sveigjanlegu efni sem má aðlaga, þar sem vel skilgreind notkunarleyfi auðvelda málin.
Lesa meira : Kanada: Kennslubækur og námsgögn í opnum aðgangi
Það telst til tíðinda þegar alþjóðlegt tímarit eins og Perspectives on Medical Education (PME) flytur sig frá stórum hefðbundnum útgefanda eins og Springer Nature yfir í fullkomlega opinn aðgang hjá útgefandanum Ubiquity Press. Frá því tímaritið var fyrst sett á markað fyrir 40 árum síðan hefur það reynt að laga sig að síbreytilegu umhverfi. Skipt…
Lesa meira : PME færir sig frá Springer Nature til Ubiquity Press
Heilbrigðisstofnanir Bandaríkjanna (National Institutes of Health – NIH) hafa sett fram stefnu sína um stjórnun gagna og miðlun þeirra (e. data management and sharing – DMS). Stefnan gildir frá 25. janúar 2023 og á að stuðla að miðlun vísindalegra gagna. Samnýting vísindagagna getur flýtt fyrir uppgötvunum á sviði líflæknisfræði t.d. með því að gera kleift…
Þann 11. janúar sl. tilkynnti Hvíta húsið ásamt 10 bandarískum alríkisstofnunum og bandalagi rúmlega 85 háskóla ásamt fleiri stofnunum – að árið 2023 yrði ár opinna vísinda. Á árinu 2023 verður fagnað ávinningi og árangri opinna vísinda. Markmiðið er að hvetja fleiri vísindamenn til að tileinka sér opin vísindi. Árangur árs opinna vísinda mun byggja…
DOAB (Directory of Open Access Books) heldur skrá yfir um 50.000 ritrýndar rafbækur sem gefnar eru út í opnum aðgangi. Útgefendur eru margir, gjarnan háskólaútgáfur s.s. Cambridge University Press (223), Bristol University Press (48), Oxford University Press (244), Edinburgh University Press (78) o.fl. Efni og fræðasvið eru mýmörg. Til gamans má nefna 2 bækur sem tengjast…
Lesa meira : Ritrýndar fræðibækur og kennslubækur í opnum aðgangi
Á vef UNESCO er að finna yfirlit yfir fræðsluefni til að byggja upp þekkingu á opnum vísindum. Efninu var safnað á árinu 2022 með opinni könnun og stuðningi frá vinnuhópi UNESCO um opin vísindi: Efnið er flokkað á eftirfarandi hátt: Enn er verið að safna fræðsluefni og vantar þess vegna efni í einstaka flokk. Ennfremur…
Svíar eru í forsæti ráðs Evrópusambandsins um þessar mundir og gáfu frá sér yfirlýsingu varðandi opinn aðgang í kjölfar umræðu meðal meðal ráðherra rannsókna. Rannsóknargreinar ESB ríkja ættu að vera aðgengilegar tafarlaust með opnum leyfum , segja Svíar. „Það að gera fræðilega útgáfu aðgengilega öllum með hraði stuðlar að hágæða rannsóknum“, sögðu Svíar 8. febrúar…
Vert er að vekja athygli á nýrri viðbót við gagnasafnið Web of Science: Preprint Citation Index. Þessi viðbót er í raun sjálfstætt gagnasafn og þegar leitað er í WoS þarf að tilgreina sérstaklega ef ætlunin er að leita í þessu safni, ýmist sér eða meðfram Web of Science. Niðurstöður eru kirfilega merktar sem „preprint“. Preprint…
Lesa meira : Viðbót við Web of Science: Preprint Citation Index