Framkvæmdastjórn ESB hefur hleypt af stokkunum vefnum Open Research Europe. Þar er útgáfuvettvangur fyrir fræðilegar greinar og rit sem eru afrakstur styrkja tengdum Horizon 2020, rammaáætlun ESB fyrir rannsóknir og nýsköpun 2014-2020 og Horizon Europe.
Samið hefur verið um opinn aðgang við Karger útgáfuna
Samlag um landsaðgang að rafrænum áskriftum hefur samið við Karger útgáfuna um opinn aðgang að vísindatímaritum fyrir alla landsmenn.
Samningurinn tryggir landsaðgang að öllum rafrænum tímaritum Karger frá og með 1998. Vísindamenn á Íslandi geta birt vísindagreinar í tímaritum Karger í opnum aðgangi án þess að greiða birtingargjöld og er fjöldi greina til birtingar ótakmarkaður.
Leiðbeiningar um innsendingu greina til birtingar hjá Karger (á ensku).
Í samningnum felst einnig aðgangur fyrir alla landsmenn að KargerLEARN, sem er kennsluvefur með 15 netnámskeiðum sem fjalla um hagnýt atriði tengdu ritunarferli vísinda- og fræðigreina og birtingum í vísindatímaritum. Námskeiðin eru alhliða og nýtast einstaklingum á öllum fræðasviðum.
Leiðbeiningar á ensku fyrir KargerLEARN.
Opinn aðgangur vs. opið á netinu
Opinn aðgangur (e. Open Access) þýðir í raun tvennt. Efnið er opið á netinu án endurgjalds fyrir notandann og það eru skýrar aðgangs-/höfundarréttarheimildir sem fylgja með efninu (gjarnan CC leyfi). Seinna atriðið er afar mikilvægt þar sem það tryggir að efnið er opið á netinu um ókomna tíð samkvæmt leyfinu.
Efni sem er opið á netinu getur verið opið af ýmsum ástæðum. Það er opið án aðgangs/höfundarréttarheimilda, það er tímabundið opið eða búið er að borga fyrir að það sé opið á ákveðnum IP tölum (t.d. í gegnum Landsaðgang eða annarskonar rafrænar áskriftir). Enginn trygging er fyrir því að efnið verði opið í framtíðinni.
Hvað varðar Landsaðgang og rafrænar áskriftir væri nær að kalla það keyptan aðgang þar sem búið er að kaupa aðgang fyrir notendann að efninu og því er aðgangur ekki ókeypis. Landsaðgangur kostar t.a.m. íslenska ríkið í kringum 200 milljónir ár hvert (sjá nánar Landsaðgangur, ársskýrslur).
Opinn aðgangur er alltaf gjaldfrjáls fyrir notandann.