Landsaðgangur að rafrænum áskriftum hefur tekið SciFree tímaritalistann í notkun.
SciFree gerir rannsakendum kleift að finna á einfaldan hátt fræðitímarit sem falla undir samninga Landsaðgangs við útgefendur, um birtingar greina í opnum aðgangi án endurgjalds (APC) eða með afslætti.
Innleiðing SciFree gerir upplýsingar um útgáfusaminga mun aðgengilegri fyrir höfunda. Með SciFree má fletta upp einstaka tímaritum, útgefendum, ISSN númerum eða eftir efni og fá með skjótum hætti, upplýsingar um skilmála, afsláttarkjör og afnotaleyfi.
Samningar hafa verið gerðir við eftirtalda útgefendur: Elsevier, Karger, Sage og Springer Nature. Sjá nánar hér.