Samningar við útgefendur gera fræðimönnum kleift að birta greinar í opnum aðgangi án kostnaðar

Landsaðgangur að rafrænum áskriftum (hvar.is) hefur gert samninga (Transformative Agreements) við fjóra alþjóðlega útgefendur: Elsevier, Springer Nature, Sage og Karger. Samningarnir gera íslenskum fræðimönnum kleift að birta greinar í opnum aðgangi án þess að greiða birtingagjöld, í fjölmörgum blönduðum tímaritum, og hjá Karger einnig í tímaritum sem eru alfarið í opnum aðgangi.

Helstu atriði samninganna:

  • Elsevier (2026–2028): Gjaldfrjálsar birtingar í blönduðum tímaritum með árlegu hámarki (119 greinar 2026, 127 greinar 2027 og 136 greinar 2028). „Fyrstur kemur – fyrstur fær.“
  • Springer Nature: Höfundar geta birt gjaldfrítt í blönduðum tímaritum með takmörkuðum fjölda birtinga á ári (45–47 greinar 2026–2028). „Fyrstur kemur – fyrstur fær.“
  • Sage (til ársloka 2026): Ótakmarkaður fjöldi gjaldfrjálsra birtinga í blönduðum tímaritum og afsláttur af birtingagjöldum í opnum aðgangi samkvæmt gylltu leiðinni.
  • Karger (2025–2027): Niðurfelling birtingagjalda bæði í blönduðum og alfarið opnum tímaritum, án takmarkana á fjölda birtinga.

 

Nánar upplýsingar