Samningar við útgefendur gera fræðimönnum kleift að birta greinar í opnum aðgangi án kostnaðar
Landsaðgangur að rafrænum áskriftum (hvar.is) hefur gert samninga (Transformative Agreements) við fjóra alþjóðlega útgefendur: Elsevier, Springer Nature, Sage og Karger. Samningarnir gera íslenskum fræðimönnum kleift að birta greinar í opnum aðgangi án þess að greiða birtingagjöld, í fjölmörgum blönduðum tímaritum, og hjá Karger einnig í tímaritum sem eru alfarið í opnum aðgangi. Helstu atriði samninganna:…