Þjónustugjöld vegna birtinga (Article Processing Charge eða APC) eru gjöld sem útgefendur rukka höfunda fyrir birtingu í opnum aðgangi. Þessi gjöld eru mismunandi eftir útgefendum. Birting er ýmist í áskriftartímariti, og er þá viðkomandi grein í opnum aðgangi en aðrar greinar í tímariti geta verið í lokaðar (Hybrid Gold Access) eða tímariti sem allt er í Opnum aðgangi
Allir útgefendur leyfa birtingu handrita (Pre-Print eða Post-Print) í varðveislusöfnum (Opin vísindi) en með mislöngum birtingatöfum
Hér fyrir neðan er yfirlit yfir APC gjöld og birtingatafir helstu útgefanda
Elsevier | Emerald | Sage | Springer | Taylor & Francis | Wiley | |
Gullna leiðin (APC gjöld) | 15 – 500 þús. | 200 – 300 þús. | 100 – 400 þús. | 300 þús. | 295 þús. | 110 – 500 þús. |
Pre-Print (Græna leiðin) | Engin birtingatöf | Engin birtingatöf | Engin birtingatöf | Engin birtingatöf | Engin birtingatöf | Engin birtingatöf |
Post-Print (Græna leiðin) | 12 – 48 mánaða birtingatöf | Engin birtingatöf | Engin birtingatöf | 12 mánaða
birtingatöf |
12-18 mánaða
birtingatöf |
12-24 mánaða birtingatöf |