Af hverju opin vísindi?
Opin vísindi (Open Science/OS) er stefna sem miðar að því að gera rannsóknir, rannsóknargögn, aðferðir og niðurstöður aðgengilegar öllum, óháð staðsetningu eða aðild að stofnun. Markmiðið er að auka gagnsæi, samstarf og traust, og hraða þar með framþróun í vísindum.
Fréttir
- Stefna um opin og ábyrg vísindiDrög að stefnu um opin vísindi er nú komin í samráðsgátt. Stefnunni er ætlað að stuðla að öflugu vísindastarfi, sterkum … Lesa áfram Stefna um opin og ábyrg vísindi
- SciFree tímaritalistinnLandsaðgangur að rafrænum áskriftum hefur tekið SciFree tímaritalistann í notkun. SciFree gerir rannsakendum kleift að finna á einfaldan hátt fræðitímarit … Lesa áfram SciFree tímaritalistinn
- Samningar við útgefendur gera fræðimönnum kleift að birta greinar í opnum aðgangi án kostnaðarLandsaðgangur að rafrænum áskriftum (hvar.is) hefur gert samninga (Transformative Agreements) við fjóra alþjóðlega útgefendur: Elsevier, Springer Nature, Sage og Karger. … Lesa áfram Samningar við útgefendur gera fræðimönnum kleift að birta greinar í opnum aðgangi án kostnaðar
- Birtingar Háskóla Íslands og opinn aðgangurSamantekt yfir þróun fræðilegra birtinga hjá Háskóla Íslands á undanförnum árum, með áherslu á stöðu opins aðgangs og útgáfu í … Lesa áfram Birtingar Háskóla Íslands og opinn aðgangur
Viðburðir, ráðstefnur og fræðsla
Apríl, 2026
Hvað er opinn aðgangur?
Opinn aðgangur (e. open access – OA) er heiti á alþjóðlegri hreyfingu sem leitast við að stuðla að opinni útgáfu og ókeypis aðgangi að vísindalegu efni á netinu, svo sem ritum og gögnum. Útgefið efni er skilgreint í „opnum aðgangi“ þegar allir hafa hindrunarlausan aðgang að efninu án fjárhagslegra, lagalegra eða tæknilegra hindrana.
