Ný stefna um opinn aðgang hjá háskólanum í Utrecht, Hollandi.
Framkvæmdastjórn háskólans í Utrecht hefur samþykkt nýja OA-stefnu um útgáfu rannsóknaafurða í skólanum: Gert er ráð fyrir að vísindamenn skólans gefi út allt sitt efni (tímaritsgreinar, bókakafla og bækur) í opnum aðgangi.
Með því að gera niðurstöður rannsókna sýnilegri eykst gagnsæi, notagildi og endurnýting þessara niðurstaðna. Auk þess ýtir það undir samfélagsleg áhrif rannsókna.
Hvað þýðir þetta fyrir vísindamenn háskólans í Utrecht? Sjá nánar.
Mynd: Floor Fotografie, CC BY-SA 4.0