Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Fréttir

Lifir Google Scholar af gervigreinarbyltinguna?

Can Google Scholar survive the AI revolution heitir grein úr Nature frá 19. nóvember 2024. Nú, þegar Google Scholar fagnar 20 ára afmæli sínum, eru komnir til sögunnar keppinautar sem styðjast við gervigreind til að bæta leitarupplifun notenda – og sumir gera notendum kleift að hlaða niður gögnum. ChatGPT, OpenAlex, Semantic Scholar og Consensus eru dæmi…

Lesa meira : Lifir Google Scholar af gervigreinarbyltinguna?

Framtíð útgáfu og stefnu um opinn aðgang

Útgefandinn MIT Press hefur gefið út ítarlega skýrslu sem fjallar um hvernig stefnur um opinn aðgang móta rannsóknir og hvað þarf til að hámarka jákvæð áhrif þeirra á vistkerfi rannsókna. Skýrslan ber heitið „Access to Science & Scholarship 2024: Building an Evidence Base to Support the Future of Open Research Policy. Hún er afrakstur vinnustofu sem styrkt var…

Lesa meira : Framtíð útgáfu og stefnu um opinn aðgang

OpenAlex – stórt framfaraskref?

Í greininni OpenAlex, a big step towards Open Science? eftir Jeroen Bosman er fjallað um gagnasafnið OpenAlex sem miðar að því að gera vísindarit aðgengilegri og bæta gagnsæi vísindarannsókna. OpenAlex er samstarfsverkefni vísindamanna frá nokkrum evrópskum háskólum, þar á meðal háskólanum í Utrecht. Fyrir ári síðan mátti finna yfir 250 milljón færslur í gagnasafninu, mun…

Lesa meira : OpenAlex – stórt framfaraskref?

Skýringamyndir og höfundaréttur – afnotaleyfi

Greinin Why Thousands of Studies May be in Copyright Limbo af vef Plagiarismtoday.com https://www.plagiarismtoday.com/ fjallar um mikilvægt efni varðandi skýringamyndir/teiknngar og höfundarétt/afnotaleyfi. Sagt er frá birtingu rúmlega 9000 tímaritsgreina í opnum aðgangi sem innihéldu skýringamyndir sem mögulega eru birtar undir röngu afnotaleyfi. Myndir þessar voru búnar til með því að nota BioRender og virtust falla…

Lesa meira : Skýringamyndir og höfundaréttur – afnotaleyfi

Verðlagning fræðilegrar útgáfu: Nýr rammi

Fræðileg þekking ætti ekki að stjórnast af misræmi í efnahag þjóða. Eftir sem áður er það staðreynd að margir vísindamenn í dag, sér í lagi í þróunarlöndum, standa frammi fyrir verulegum hindunum þegar um er að ræða þátttöku í fræðilegum samskiptum. Hefðbundin útgáfulíkön taka engan veginn fullt tillit til þessa misræmis. Þegar vísindamenn hafa ekki…

Lesa meira : Verðlagning fræðilegrar útgáfu: Nýr rammi

Áhrif COVID-19 á opin vísindi

Hvaða áhrif hafði COVID-19 heimsfaraldurinn á umræðuna um opin vísindi? Um það fjallar greinin „The impact of COVID-19 on the debate on open science: a qualitative analysis of published materials from the period of the pandemic“ úr tímaritinu Humanities and Social Sciences Communications frá 2. október 2024. Höfundar eru Melanie Benson Marshall og fleiri. Greinin…

Lesa meira : Áhrif COVID-19 á opin vísindi

Alþjóðleg vika opins aðgangs 2024

Alþjóðleg vika opins aðgangs 2024 var haldin dagana 21.-27. október. Þema vikunnar var hið sama og árið 2023:   „Samfélag fram yfir markaðsvæðingu“  (e. Community over Commercialization). Dagskrá var öllum opin. Rannsakendur og doktorsnemar voru sérstaklega hvattir til að nýta sér kynningarnar. Hér fyrir neðan má sjá glærur og upptökur frá kynningum vikunnar:

Lesa meira : Alþjóðleg vika opins aðgangs 2024

OA Books Toolkit: Endurbætt síða

OAPEN Foundation hefur haldið upp á sinn fjórða afmælisdag. Af því tilefni var endurbætt verkfærasett kynnt til sögunnar, þ.e. Open Access Books Toolkit. en það er hluti af PALOMERA verkefninu sem ESB styrkir. Verkfærasettinu/vefsíðunni er ætlað að efla og styðja við opinn aðgang (OA) að fræðilegum bókum. Vefsíðan samanstendur af stuttum greinum sem fjalla um …

Lesa meira : OA Books Toolkit: Endurbætt síða

Opin vísindi við Stanford háskóla – vert að vita

Í greininni 7 things to know about open science at Stanford fjalla Russell Poldrack, Zach Chandler, and Francesca Vera um aðferðir opinna vísinda við Stanford og hvernig þær eru að breyta háskólaumhverfinu. “Making science more transparent and reproducible was our goal because, broadly, I believe it makes science better,” said Poldrack. While he’s been working…

Lesa meira : Opin vísindi við Stanford háskóla – vert að vita

Val á tímariti fyrir rannsóknaniðurstöður: Gátlisti

Í greininni Choosing a journal for your research: Checklist for researchers and librarians eru góðar leiðbeiningar fyrir bæði rannsakendur og upplýsingafræðinga um hvernig best sé að velja viðeigandi tímarit fyrir rannsóknaniðurstöður. Val á tímariti er mikilvægt mál fyrir rannsakendur sem bæði vilja tryggja tímanlega og víðtæka miðlun rannsóknaniðurstaðna sinna sem og að uppfylla kröfur sem stofnanir…

Lesa meira : Val á tímariti fyrir rannsóknaniðurstöður: Gátlisti