Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Fréttir

OpenAire birtir aðgerðaáætlun varðandi endurskoðun rannsóknamats

OpenAIRE hefur nýlega gefið út aðgerðaáætlun sína til stuðnings Coalition for Advancing Research Assessment (CoARA) meginviðmiðum. Þessi áætlun er hluti af yfirgripsmikilli OpenAIRE áætlun fyrir 2023–2025 og undirstrikar stuðning OpenAIRE við að efla aðferðir rannsóknarmats í samræmi við áherslur opinna vísinda. Meðlimir OpenAire eru nú 52 í 39 löndum og er stofnunin því vel til þess…

Lesa meira : OpenAire birtir aðgerðaáætlun varðandi endurskoðun rannsóknamats

Háskólinn í Leiden (NL): Opin vísindi og stefna um mannaráðningar og stöðuhækkanir

Hollenskar þekkingarstofnanir vinna að því að viðurkenna og verðlauna opin vísindi. Þann 13. desember  2024 samþykkti stýrinefnd  Open Science NL alls 1,2 milljónir evra í styrki til 23 hollenskra stofnana. Miðstöð vísinda- og tæknifræða (CWTS-The Centre for Science and Technology Studies) mun samræma  þessa vinnu á landsvísu. Landsverkefnið tryggir samhæfingu og samræmingu þessara 23 stofnana varðandi…

Lesa meira : Háskólinn í Leiden (NL): Opin vísindi og stefna um mannaráðningar og stöðuhækkanir

Evrópsk miðstöð um demantaútgáfu – „diamond open access“

Þann 15. janúar 2025 var hleypt af stokkunum evrópskri miðstöð um sk. demantaútgáfu: European Diamond Capacity Hub (EDCH) í Madrid. OPERAS, grunnstoð rannsóknarinnviða fyrir opin fræðileg samskipti í félagsvísindum og hugvísindum, mun sjá um fjármálahliðina. Demantaútgáfa er módel að fræðilegri útgáfu sem tekur engin gjöld af höfundum eða lesendum og þar sem efnistengdir þættir útgáfunnar eru…

Lesa meira : Evrópsk miðstöð um demantaútgáfu – „diamond open access“

Heilbrigðisstofnanir í USA breyta aðgangsstefnu að rannsóknaniðurstöðum

NIH – National Institutes of Health í Bandaríkjunum hefur gefið út nýja stefnu til að flýta fyrir aðgangi að rannsóknarniðurstöðum sem styrktar eru af stofnunum þess. Stefnan: https://www.nih.gov/about-nih/who-we-are/nih-director/statements/nih-issues-new-policy-speed-access-agency-funded-research-results NIH hefur lengist barist fyrir því að gagnsæi einkenni rannsóknir sem styrktar eru af stofnunum þess og að aðgengi að rannsóknaniðurstöðum sé gott. Í þeim tilgangi er komin út…

Lesa meira : Heilbrigðisstofnanir í USA breyta aðgangsstefnu að rannsóknaniðurstöðum

Er akademían að hindra framgang vísinda?

„Ég áttaði mig á því að við í akademíunni erum hluti af vandamálinu – og jafnvel einn stærsti þátturinn – sem takmarkar framgang vísinda. Vegna þess að eins og er, í besta falli, virka fræðimenn og fræðilegar rannsóknir eins og viðskipti/kapítalískt kerfi, þar sem það mikilvægasta er hagnaður útgefenda og orðstír vísindamanna.“ Afar áhugaverð grein…

Lesa meira : Er akademían að hindra framgang vísinda?

Í átt að opnari og sanngjarnari útgáfu í framtíðinni – cOAlition S

cOAlition S hefur sett fram tillögu „Í átt að ábyrgri útgáfu“ sem miðar að því að efla ábyrga útgáfuhætti. Haft var samráð við alþjóðlega hagsmunaaðila sem sýndi greinilega stuðning við „pre-print“ (í. forprent) og „open peer review“ (í. opna ritrýni). Það samráð leiddi einnig í ljós þörfina fyrir samþættingu þvert á útgáfuverklagið og sjálfbæra innviði.…

Lesa meira : Í átt að opnari og sanngjarnari útgáfu í framtíðinni – cOAlition S

Hvað er demanta opinn aðgangur?

UNESCO hefur gefið út lýsingu á slíkum aðgangi og röksemdafærslu fyrir honum: Diamond open access Hvað er demanta opinn aðgangur? Diamond Open Access (Diamond OA) er samfélagsdrifið, óhagnaðardrifið módel fræðilegrar útgáfu án fjárhagslegra hindrana fyrir höfunda og lesendur. Með slíkum aðgangi er efnið aðgengilegt ókeypis á netinu og hvorki um að ræða áskriftargjöld fyrir lesendur né…

Lesa meira : Hvað er demanta opinn aðgangur?

Staðan varðandi opin gögn 2024

Könnunin The State of Open Data hefur nú farið fram í níunda sinn. Könnunin veitir mikilvægar upplýsingar um atferli vísindamanna varðandi opin gögn. Um er að ræða samstarfsverkefni Figshare, Digital Science og Springer Nature. Með því að sameina upplýsingar og gögn frá þremur mismunandi aðilum, þ.e.  Dimensions, Springer Nature Data Availability Statements (DAS) og Chan Zuckerberg Initiative-funded…

Lesa meira : Staðan varðandi opin gögn 2024