Greinasafn fyrir flokkinn: Opin vísindi

Opin vísindi og vegferð Svía

 Svíar eru allnokkrum árum á undan Íslendingum hvað varðar stefnumörkun um opin vísindi og þó að þeirra vegferð sé hvorki hindrunar- né gallalaus, er fróðlegt fyrir Íslendinga að kynna sér þeirra stöðu.

Í greininni „An Open Science Roadmap for Swedish Higher Education Institutions“  eftir Sabina Anderberg (Háskólanum í Stokkhólmi) er farið yfir stöðu Svía í dag og hvert þeir vilja stefna. Einnig kemur skýrt fram hvar skórinn kreppir og hvað þurfi að gera til að styrkja þeirra vegferð.

Lesa áfram Opin vísindi og vegferð Svía →

Opin vísindi – varðveislusafn fyrir vísindagreinar

Ein leið til útgáfu í opnum aðgangi er birting með grænu leiðinni (e. green open access). Handrit að grein er birt og gert aðgengilegt í  varðveislusafni eins og Opnum vísindum, samhliða birtingu annars staðar. Höfundur sendir varðveislusafninu ýmist óritrýnt handrit (Pre-print) eða ritrýnt lokahandrit (Post-print/Accepted manuscript) sem tilbúið er til birtingar. Einstaka sinnum er hægt að birta endanlega útgáfu ef tímaritið er opið. Greinin er síðan gefin út í áskriftartímariti en er jafnframt aðgengileg í opnum aðgangi í varðveislusafninu. Stundum er birtingartöf á efni sé þessi leið farinn, en það er mismunandi eftir útgefendum (sjá nánar um birtingatafir)

Upplýsingar um útgáfustefnu einstakra tímarita, birtingartöf og hvaða útgáfu greina má vista í varðveislusöfnum er hægt að nálgast hjá SherpaRomeo

Við hvetjum alla fræðimenn til að senda leyfilegar útgáfur greina sinna í Opin vísindi. Hér eru leiðbeiningar um skil í Opin vísindi