Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Fræðsluefni OA/OV

Handbók um opin vísindi frá Hollandi

Samtök hollenskra háskólabókasafna ásamt Þjóðbókasafni Hollands (UKB), háskólar Hollands (UNL), Hollenska þekkingarmiðstöðin og varðveislusafn fyrir rannsóknir (DANS) og hollenska rannsóknarráðið (NWO), hafa gefið út hagnýtan leiðarvísi um opin vísindi sérstaklega ætlaðan ungum rannsakendum: Open Science: A Practical Guide for Early-Career Researchers.

Lesa meira : Handbók um opin vísindi frá Hollandi

Réttindi höfunda og rannsakenda: Leiðbeiningar

Þegar rannsakendur halda réttindum sínum á samþykktum handritum sínum, geta þeir og aðrir endurnýtt það efni svo sem til rannsókna, kennslu, í bókum, og á netinu. Þannig uppfylla þeir einnig kröfur styrkveitenda um opinn aðgang að efni sem til verður fyrir opinbert fé. UKRN (The UK Reproducibility Network) hefur gefið út leiðbeiningar til að kynna…

Lesa meira : Réttindi höfunda og rannsakenda: Leiðbeiningar

Opin vísindi sem námskeið á háskólastigi?

„Opin vísindi eru einfaldlega góð vísindi á stafrænum tímum“. Þetta er tilvitnun í  Dr. Heidi Seibold sem starfar á eigin vegum við að leiðbeina rannsakendum sem vilja gera rannsóknarniðurstöður sínar opnar og aðgengilegar. Hún leggur áherslu á að ef ætlunin sé að ala upp góða vísindamenn, þurfi að koma opnum vísindum inn í kennsluskrá háskóla.…

Lesa meira : Opin vísindi sem námskeið á háskólastigi?

Opin vísindi: Fræðsluefni

Á vef UNESCO er að finna yfirlit yfir fræðsluefni til að byggja upp þekkingu á opnum vísindum.  Efninu var safnað á árinu 2022 með opinni könnun og stuðningi frá vinnuhópi UNESCO um opin vísindi: Efnið er flokkað á eftirfarandi hátt: Enn er verið að safna fræðsluefni og vantar þess vegna efni í einstaka flokk. Ennfremur…

Lesa meira : Opin vísindi: Fræðsluefni