Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Þjónustugjöld vegna birtinga (APC) og birtingatafir útgefanda

Þjónustugjöld vegna birtinga (Article Processing Charge eða APC) eru gjöld sem útgefendur rukka höfunda fyrir birtingu í opnum aðgangi. Þessi gjöld eru mismunandi eftir útgefendum. Birting er ýmist í áskriftartímariti, og er þá viðkomandi grein í opnum aðgangi en aðrar greinar í tímariti geta verið í lokaðar (Hybrid Gold Access) eða tímariti sem allt er í Opnum aðgangi

Allir útgefendur leyfa birtingu handrita (Pre-Print eða Post-Print) í varðveislusöfnum (Opin vísindi) en með mislöngum birtingatöfum

Hér fyrir neðan er yfirlit yfir APC gjöld og birtingatafir helstu útgefanda

 ElsevierEmeraldSageSpringerTaylor & FrancisWiley
Gullna leiðin (APC gjöld)15 – 500 þús.200 – 300 þús.100 – 400 þús.300 þús.295 þús.110 – 500 þús.
Pre-Print (Græna leiðin)Engin birtingatöfEngin birtingatöfEngin birtingatöfEngin birtingatöfEngin birtingatöfEngin birtingatöf
Post-Print (Græna leiðin)12 – 48 mánaða birtingatöfEngin birtingatöfEngin birtingatöf12 mánaða
birtingatöf
12-18 mánaða
birtingatöf
12-24 mánaða birtingatöf

Nánari upplýsingar