Hver eru áhrif Plan S á alþjóðlegt vistkerfi fræðilegra samskipta?
Eftir 5 mánaða rannsókn eru ráðgjafar frá scidecode science consulting (já… með litlum staf…) tilbúnir að kynna fyrstu niðurstöður. Það er vissulega fróðlegt fyrir alla hagsmunaaðila að skoða þær niðurstöður; þ.m.t. talsmenn opins aðgangs, upplýsingafræðinga, styrkveitendur, rannsakendur og útgefendur.
Hér fyrir neðan fylgir upptaka af veffundi sem haldinn var 9. apríl 2024 á vegum OASPA (Open Access Scholarly Publishing)
Nánar um dagskrá:
-
-
- 5 mínútna kynning eftir Ashley Farley, fulltrúa cOAlition S frá Bill og Melinda Gates Foundation um tilgang rannsóknarinnar og markmið.
- 20 mínútna kynning ráðgjafafyrirtækisins scidecode þar sem rannsóknin og fyrstu niðurstöður hennar verða kynntar.
- 15 mínútna kynning frá Emmu Wilson frá Royal Society of Chemistry á vegvísi þeirra varðandi umskipti yfir í tafarlausan opinn aðgang og áhrifin sem Plan S hefur haft á hönnun vegvísisins.
- 35 mínútna umræður sem áttu sér stað við áhorfendur í gegnum Zoom kannanir, spurningar og svör.
-