Yfirskrift vikunnar í ár er Verðmiði þekkingar eða the Cost of Knowledge þar sem fjallað verður um kostnað sem fer sífellt hækkandi, við að dreifa og nálgast þekkingu.
Dagskrá viku opins aðgangs 19.–25. október 2026
Mánudagur 19. október
Að borga fyrir opinn aðgang: Birtingasjóður Háskóla Íslands og samningar Landsaðgangs
Kl. 14:00–15:00 í streymi á Zoom:
https://eu01web.zoom.us/j/69689567871
Málstofa um þær leiðir sem standa höfundum til boða til að mæta kostnaði við birtingagjöld (APC). Fjallað verður um Birtingasjóð Háskóla Íslands sem styrkir kostnað vegna birtinga vísindagreina í opnum aðgangi og þá umbreytandi samninga (transformative agreements) sem Landsaðgangur hefur gert við útgefendur um birtingar í opnum aðgangi (Open Access). Farið verður yfir nokkur mikilvæg skilyrði sem þarf að uppfylla við gerð umbreytandi samninga við útgefendur og hvað er fram undan í þróun opinna vísinda og opins aðgangs.
- Upplýsingar um umbreytandi samninga Landsaðgangs
- SciFree tímaritalistinn – leitarvél yfir tímarit sem falla undir samninga Landsaðgangs
- Hvað er fram undan í heimi opins aðgangs? Ályktun B18 – Berlin Open Access Conference
Kynnar: Baldvin M. Zarioh, deildarstjóri Vísinda- og nýsköpunarsviðs, og Birgir Björnsson, umsjónarmaður Landsaðgangs
Þriðjudagur 20. október
Málþing NDSN um góða starfshætti við umsjón rannsóknargagna
Kl. 8:00–10:00 (10:00–12:00 CEST) á Zoom. Athugið að málþingið fer fram á ensku.
Norræna samstarfsnetið um gagnahirðingu (Nordic Data Stewardship Network, NDSN) heldur tveggja klukkustunda málþing í tilefni af alþjóðlegri viku opins aðgangs (Open Access Week). Þar koma saman sérfræðingar í umsjón rannsóknargagna frá Norðurlöndunum til að miðla hagnýtri reynslu, lærdómi og lausnum sem hægt er að aðlaga að ólíkum aðstæðum, endurnýta og innleiða víðar. Á dagskránni eru sex stutt erindi, auk tíma fyrir opnar umræður og spurningar frá þátttakendum.
- Þróun og nýjar áherslur í birtingu rannsóknargagna og hugbúnaðar hjá rannsóknastofnunum í Svíþjóð. Fyrirlesarar: Michaela Barth, KTH; Carolin Rebernig-Hedman, SciLifeLab; Olivia Ekman, UmU.
- Nýjar áherslur í góðum starfsháttum og þjónustu á sviði gagnastjórnunar í Noregi. Fyrirlesarar: Jenny Ostrop, Háskólanum í Bergen, og Federico Bianchini, ELIXIR-NO.
- Innleiðing Data Stewardship Wizard sem verkfæris til að vinna með gagnastjórnunaráætlanir við Háskóla Íslands. Fyrirlesari: Eiríkur Stephensen, Háskóla Íslands.
- Landsstefna um FAIR-gögn: aukið virði rannsóknargagna með innleiðingu staðlaðrar hugtakanotkunar fyrir samvirkni gagna í Danmörku. Fyrirlesari: Brigita P. Vollstedt, DeiC.
- ELEVATE-DM: Efling getu til gagnastjórnunar við Háskólann í Tartu í Eistlandi. Fyrirlesari: Heleri Inno, ELIXIR-EE.
- Frá áskorunum til tækifæra: Hvernig samstarf fagfólks í gagnamálum stuðlar að þekkingarmiðlun og þróun góðra starfshátta í Finnlandi. Fyrirlesari: Päivi Rauste, CSC.
Skráning: Vinsamlegast skráið ykkur hér svo hægt sé að áætla fjölda þátttakenda: https://eu01web.zoom.us/meeting/register/G3b1v_zURKahYis67PHn2g
In English: NDSN Online Meeting – Sharing Best Practices in Data Stewardship
At 10–12 (CEST) on Zoom
The Nordic Data Stewardship Network (NDSN) will hold a two-hour online meeting to celebrate Open Access week. The session will bring together data stewardship professionals from across the Nordic region to share practical experiences, lessons learned, and solutions that can be scaled, adapted, and reused across organizations. The program will include six short presentations (see below) but it will also include time for open discussion, questions, and sharing of experiences among participants.
- Data and Software publishing trends and developments at research institutions in Sweden. Presenters: Michaela Barth, KTH; Carolin Rebernig-Hedman, SciLifeLab; Olivia Ekman, UmU.
- National updates in data management best practices and services in Norway. Presenters: Jenny Ostrop, University of Bergen, and Federico Bianchini, ELIXIR-NO.
- Implementing Data Stewardship Wizard as a tool for data management plans at University of Iceland. Presenter: Eiríkur Stephensen, University of Iceland.
- FAIR National strategy: improving research data value framework by adopting foundational semantic interoperability standards in Denmark. Presenter: Brigita P. Vollstedt, DeiC.
- ELEVATE-DM: Strengthening Data Management Capacity at the University of Tartu in Estonia. Presenter: Heleri Inno, ELIXIR-EE.
- From Challenges to Opportunities: How collaboration among data professionals enables learning, knowledge exchange, and the creation of shared best practices in Finland. Presenter: Päivi Rauste, CSC.
To register: Sign up here (so we know roughly who will be attending): https://eu01web.zoom.us/meeting/register/G3b1v_zURKahYis67PHn2g
Miðvikudagur 21. október
Opin útgáfa án gjalda: Demanta opinn aðgangur
Kl. 13:00–13:30 í streymi á Zoom: https://eu01web.zoom.us/j/69859674931
Fjallað um opna útgáfu án gjalda sem gengur undir heitinu demanta opin útgáfa. Fjallað verður um þjónustu Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns við fræðitímarit sem gefin eru út án gjalda, uppbyggingu ejournals.is og hvernig hægt er að finna tímarit í demanta opnum aðgangi. Þá verður einnig fjallað um evrópskt og norrænt samstarf sem snýr að því að byggja upp innviði til að styrkja útgáfu í demanta opnum aðgangi.
Innviðir fyrir demantaútgáfu – nánar um evrópska og norræna samstarfið
Kynnir: Helgi Sigurbjörnsson, sérfræðingur á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni
Föstudagur 23. október
Frá stefnu til starfsvenja: Stuðningsumhverfi opinna og ábyrgra vísinda
Kl. 10:00–11:00 í streymi á Zoom: https://eu01web.zoom.us/j/67498233855
Í kynningunni verður farið yfir helstu áherslur nýrrar stefnu menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins um opin og ábyrg vísindi og þýðingu þeirra fyrir stoðþjónustu rannsókna. Sérstök áhersla verður lögð á hæfniuppbyggingu og þróun stuðnings við gagnastjórnun, opnar rannsóknaraðferðir, rannsóknaöryggi og ábyrgt alþjóðasamstarf. Fjallað verður um hvernig skýr ábyrgð, sameiginlegir verkferlar og samnýting sérþekkingar geta stutt innleiðingu stefnunnar.
Kynnir: Sigríður Geirsdóttir, sérfræðingur hjá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti