Innviðir fyrir demantaútgáfu

Inngangur

Demantaútgáfa (Diamond open access) verður sífellt mikilvægari þáttur í innleiðingu opins aðgangs og er útgáfulíkan sem byggist á því að hvorki lesendur greiði fyrir aðgang, né höfundar birtingargjöld. Útgáfukostnaður er þess í stað greiddur með stuðningi háskóla eða annarra stofnana sem vilja stuðla að opinni miðlun þekkingar.

Evrópskir innviðir

Evrópska samstarfsverkefninu DIAMAS (Developing Institutional Open Access Publishing) var komið á fót til að styrkja demantaútgáfu. Í því fólst að kortleggja fræðiútgáfu án birtingargjalda og þróa gæðastaðla og verkfæri í þeim tilgangi að efla fagmennsku fyrir slíka útgáfu. Afraksturinn varð gæðastaðallinn DOAS (Diamond Open Access Standard) sem nær meðal annars yfir stjórnarhætti og eignarhald, fjármögnun, ritstjórnarferli, tæknilega innviði og fleira.

DIAMAS var tímabundið verkefni og í kjölfarið var stofnuð evrópska samstarfsmiðstöðin EDCH (European Diamond Capacity Hub) sem hefur það hlutverk að styðja við og efla demantaútgáfu um alla álfuna. Hlutverk EDCH er að viðhalda gæðastöðlum og verkefnum sem þróuð voru í DIAMAS-verkefninu, ásamt því að skapa tengslanet fyrir þekkingarmiðlun og samstarf milli evrópskra og svæðisbundinna stuðningsmiðstöðva.

Norrænir innviðir

Í framhaldinu hefur verið sett upp norrænt samstarfsverkefni um uppbyggingu innviða fyrir útgáfu fræðirita í opnum aðgangi. Verkefnið ber heitið NCCDOA (Nordic Capacity Centre for Diamond Open Access) og starfar í nánum tengslum við EDCH.

Helstu markmið NCCDOA eru að byggja upp norrænt tengslanet fyrir demantaútgáfu og veita fræðslu, þjálfun og ráðgjöf til útgefenda og stofnana. Verkefninu er ætlað að aðlaga evrópska staðla og verkfæri að norrænum aðstæðum, styðja við útgáfu á norrænum tungumálum og efla sjálfbæra útgáfu án birtingargjalda.

NCCDOA er enn í þróun og á ekki að stýra, heldur vera tengiliður, deila reynslu og aðstoða við að innleiða evrópska staðla út frá norrænum venjum.

Hér á landi eru gefin út nokkur íslensk fræðitímarit. Með stuðningi NCCDOA mætti bæta skipulag og gæði útgáfu þeirra til að uppfylla viðmið demantaútgáfu.

Helstu viðfangsefni DIAMAS

1. Að gera útgáfu fræðiefnis sýnilega

DIAMAS kannaði fjölda stofnana um Evrópu sem gefa út fræðitímarit. Margar þeirra voru litlar og óþekktar, en saman mynduðu þær mikilvægan stuðning við vísindasamfélagið. Með því að safna upplýsingum um þær og kortleggja, var hægt að útbúa gagnagrunn sem hjálpar til við að fá betri yfirsýn.

2. Að yfirfara fjármögnun og sjálfbærni

Sum tímarit fá styrki, önnur eru rekin af háskólum og sum blanda saman mismunandi fjármögnunarleiðum. Til að tryggja sjálfbærni er mikilvægast að tryggja stöðugleika með nægu starfsfólki og langtímafjármögnun.

3. Að skilgreina gæðaviðmið og útbúa staðal

Gæðastaðallinn DOAS skilgreinir gæði á víðtækan hátt og gátlisti hans nær meðal annars yfir:

  • Hvernig tímarit er fjármagnað
  • Hverjir eiga það og hvernig því er stýrt
  • Hvernig ritrýni og gæði eru tryggð
  • Hvernig tæknimálum og varðveislu er háttað
  • Hvernig jafnrétti og fjölbreytni er sinnt

DOAS gerir kröfur um gagnsæi í stjórnarháttum, fjármögnun, siðferði, varðveislu og tæknilegum innviðum. Þá býður staðallinn útgefendum verkfæri til að greina styrkleika og veikleika, og vinna markvisst að umbótum.

Áskoranir

Enda þótt útgáfulíkanið geri ekki ráð fyrir birtingargjöldum, er útgáfan ekki ókeypis og spurningin er – hver greiðir kostnaðinn?

Niðurstöður DIAMAS-verkefnisins benda til þess að kostnaðurinn sé oft borinn af háskólum, rannsóknastofnunum eða opinberum aðilum, með því að greiða laun starfsfólks sem sér um ritstjórn og útgáfu. Einnig að mörg tímarit reiði sig á ótrygga fjármögnun, eins og styrki eða sjálfboðavinnu. Þetta kalli á uppbyggingu betri innviða og stuðningskerfis.

Góðir staðlar og tengslanet leysa ekki allan vanda. Lykilverkefnið sé að færa fjármögnunina frá tímabundnum styrkjum og sjálfboðavinnu yfir í langtímastuðning og launað starfsfólk. Gæðastaðall staðfestir heldur ekki árangur. DOAS skilgreinir væntingar og gerir sjálfsmat mögulegt, en raunveruleg áhrif ráðast af innleiðingu, umbótastarfi og gagnsæju stjórnskipulagi. Staðallinn leggur línurnar, en tryggir ekki fjármagn.

Niðurstöður

Demantaútgáfa byggir á þeirri hugmynd að aðgangur að rannsóknaniðurstöðum eigi ekki að ráðast af greiðslugetu höfunda eða lesenda. Markmiðið er þó ekki bara að gera lestur tímarita og birtinga gjaldfrjálsar, heldur að tryggja gæði og útgáfu fræðilegs efnis á sjálfbæran hátt. DIAMAS hefur lagt grunn að samræmdum evrópskum stuðningi með stöðlum, verkfærum og samstarfsneti og NCCDOA aðlagar þann stuðning að norrænum aðstæðum. Stærsta áskorunin er fjármögnun. Til að tryggja sjálfbæra demantaútgáfu þarf langtímastuðning við þá innviði og þjónustu sem útgáfan byggir á.