Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

BerlinUP – nýr útgefandi bóka og tímarita í opnum aðgangi

BerlinUP –  Berlin Universities Publishing er nýr útgefandi bóka og tímarita í opnum aðgangi. Að útgáfunni stendur Bandalag háskóla í Berlín,  Berlin University Alliance. Bókasöfn eftirfarandi háskóla styðja framtakið:

  • Freie Universität Berlin
  • Humboldt Universität zu Berlin
  • Technische Universität Berlin
  • Charité – Universitätsmedizin Berlin.

Gefnar verða út bækur og tímarit frá háskólunum innan bandalagsins, en einnig er BerlinUP ráðgefandi um útgáfu í opnum aðgangi.

Mynd: Historic and modern buildings at Campus Charité Mitte (CCM).
By Dirk1981 – Own work, CC BY-SA 4.0,