Landssamningur við Karger
Í gildi er landssamningur að tímaritum útgáfufyrirtækisins Karger sem sérhæfir sig í tímaritum innan læknisfræði. Samningurinn felur í sér að árið 2023 geta íslenskir vísindamenn sem tengjast íslenskri stofnun og vilja birta greinar í tímaritum Karger, sótt um niðurfellingu birtingagjalds (APC – article processing charge) sem og niðurfellingu viðbótarútgáfukostnaðar (Authors ChoiceTM) að því tilskyldu að handrit þeirra séu samþykkt til birtingar.
Þetta gildir um greinar sem birtar eru í tímaritum Karger sem eru alfarið í opnum aðgangi sem og í sk. „hybrid“ tímaritum frá Karger (áskriftartímarit sem bjóða upp á birtingu greina ýmist í lokuðum eða opnum aðgangi).
ATH: Þegar þú sendir inn handrit í tímarit frá Karger þarftu að gæta þess að nota íslenskt netfangi (endar á .is)
Innsend handrit geta verið af eftirfarandi tegund:
-
-
- Original research articles
- Review articles
- Proceedings
- Letters
- Editorials
-
Samningur við Karger
Hér má sjá landssamninginn við Karger.