OpenAIRE Explore byggir á OpenAIRE Research Graph. Það er opið kerfi (e. open source) sem safnar og tengir saman lýsigögn (e. metadata) og tengla í vísindaafurðir sem tiltækar eru innan innviða OpenAIRE Open Science. Um er að ræða styrkveitendur, stofnanir, rannsakendur, rannsóknarsamfélög og útgefendur.
Hægt er að leita í kerfinu með OpenAIRE Explore að titlum, höfundum, DOI númerum, í útdráttum og innihaldi og takmarka við vísindaafurðir, verkefni, efnisveitur eða stofnunir.
Sömuleiðis er hægt að skoða niðurstöður eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og fræðasviðum.
-
- Nánari upplýsingar um uppbyggingu OpenAIRE Research Graph á vef Zenodo.org
- Frjáls aðgangur að lýsigögnum og tenglum frá rúmlega 70.000 traustum heimildum.
- Nánari upplýsingar um OpenAIRE Research Graph
Dæmi um efnisveitur:
PubMed, GitHub, Zenodo, arxiv.org, NARCIS, protocols.io, OpenTrials, re3data.org, ORCID, OpenDOAR, Crossref, ROR, European Union, Wellcome, UnPaywall, Microsoft, PLOS og ótal fleiri.
Íslenskar heimildir í Research Graph
-
- Varðveislusafnið Opin vísindi
- Hirsla (Vísinda- og fræðsluefnissafn Landspítala)
- Tímarit:
- Tímarit um uppeldi og menntun
- Stjórnmál og stjórnsýsla
- Arctic Yearbook
- Læknablaðið
- Nordic Mediterraneum
- Íslenska þjóðfélagið: The Icelandic Society
- Orð og tunga