Það er fróðlegt að skoða tölulegar upplýsingar úr gagnasafninu Scopus sem varðar tímaritsgreinar íslenskra rannsakenda í opnum aðgangi. Upplýsingarnar hér fyrir neðan miðast við 30. nóvember 2021, tímaritsgreinar í ritrýndum tímaritum og nægir að höfundur sé tengdur íslenskri stofnun hvort sem hann er fyrsti höfundur eða meðhöfundur.
-
- Ef litið er til birtinga rannsakenda sem á einn eða annan hátt tengjast Háskóla Íslands, eru um 6500 tímaritsgreinar í opnum aðgangi af 14.110 alls. Þar af eru um 1900 greinar í tímaritum sem eingöngu birta í opnum aðgangi. Læknisfræði er þar fyrirferðarmesta fræðasviðið.
- Birtingar rannsakenda Háskólans í Reykjavík telja um 950 greinar sem aðgengilegar eru í opnum aðgangi af u.þ.b. 1900 tímaritsgreinum alls . Um 300 tímaritsgreinar eru birtar í tímaritum sem eingöngu birta í opnum aðgangi.