Opinn aðgangur – hlaðvarp
Hlaðvarp um OA í tilefni viku opins aðgangs 25. – 31. október 2021
1. þáttur – Áhrif opins aðgangs á akademískar rannsóknir
Sara Stef. Hildardóttir og Sigurgeir Finnson, upplýsingafræðingar, ræða um opinn aðgang og áhrif á akademískar rannsóknir.
2. þáttur – Reynsla úr hugvísindum af opnum aðgangi
Gestur þáttarins er Helga Hilmisdóttir, rannsóknardósent við Árnastofnun og ritstjóri fræðatímaritsins Orð og tunga en hún var spurð út í reynslu hennar af opnum aðgangi við útgáfu og birtingu greina.
3. þáttur – Áhrif Plan S á útgáfu og aðgang að rannsóknum
Viðmælendur þessa þáttar eru Guðrún Þórðardóttir og Þórný Hlynsdóttir, upplýsingafræðingar við Landbúnaðarháskólann og Háskólann á Bifröst sem töluðu um áhrif Plan S.
4. þáttur – Doktorsnemar og birtingar skv. opnum aðgangi
Í þessum fjórða kemur upplýsingafræðingur frá Bókasafni Háskólans í Reykjavík, Irma Hrönn Martinsdóttir, í spjall og talar um hvernig aðstoð doktorsnemar þurfa til að skilja varðveislu, birtingar- og útgáfumál og til að þau glati ekki höfundarrétti að verkum sínum.
5. þáttur – Samfélagsleg áhrif og aðgengi að rannsóknum
Í þessum þætti fá Sigurgeir Finnsson og Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingar til sín góða gesti, þær Brynju Ingadóttur og Sigríði Zoëga, sem báðar eru dósentar við Hjúkrunarfræðideild HÍ, en þær tala um eigin reynslu af opnum aðgangi í birtingu rannsókna og þann samfélagslega ávinning sem hlýst af opnum aðgangi almennt.