Yfirskrift vikunnar er Who Owns Our Knowledge? eða Hver á þekkinguna? þar sem fjallað er um eignarhald og aðgengi að þekkingu í nútímasamfélagi. Fjölbreytt dagskrá er í boði sem samanstendur af podköstum frá Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, Háskólanum í Reykjavík, Háskólanum á Akureyri, Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands. Þá stendur Gagnís fyrir rafrænu málþingi í samstarfi við norrænt tengslanet gagnahirða (NDSN) auk þess að hægt verður að fylgjast með áhugaverðri vefdagskrá erlendis frá.