Það eru án efa margir sem átta sig ekki á ýmsu varðandi höfundarétt og hvernig hann virkar í samhengi við Creative Commons afnotaleyfi.
Bæklingurinn Guide to Creative commons for Scholarly Publications and Educational Resources er gefinn út af Rannsóknamiðstöð Hollands (NWO), samtökum háskóla í Hollandi (VSNU) , háskólabókasöfnum í Hollandi og Þjóðbókasafni Hollendinga. Þó að hann sé aðlagaður að þörfum Hollendinga, svarar hann á einfaldan hátt mýmörgum spurningum um höfundarétt og afnotaleyfi.
Dæmi:
-
-
- Hver er munurinn á höfundaleyfi (e. copyright) og afnotaleyfi (e. Creative Commons)?
- Hvað þarf að athuga varðandi höfundarétt í samningum við útgefendur?
- Hvaða afnotaleyfi hentar best fyrir þitt verk?
- Afhverju er hvatt til þess að nota afnotaleyfið CC-BY á verk í opnum aðgangi?
- Hvernig á ég að gefa út með afnotaleyfi frá Creative Commons?
- Hver á höfundarétt ef verk er gefið út með Creative Commons afnotaleyfi?
- Ef ég gef út bók með CC-BY afnotaleyfi, má þá þýða hana án leyfis frá mér?
-
Þessum spurningum og mörgum fleirum er svarað í bæklingum Guide to Creative commons for Scholarly Publications and Educational Resources.