Ný bók um Plan S

Búið er að gefa út bók um Plan S – áætlun frá  alþjóðlegu bandalagi rannsóknasjóða og styrktaraðila sem kynnt var í september 2018 og þótti bæði djarft og mikilsvert framtak. Bókin er að sjálfsögðu í opnum aðgangi:

Smits, R.-J., 2022. Plan S for Shock. London: Ubiquity Press. DOI: https://doi.org/10.5334/bcq

Í bókinni færir höfundur áætlunarinnar, Robert-Jan Smits, sannfærandi rök fyrir opnum aðgangi og opinberar í fyrsta skipti hvernig hann hófst handa við að gera þessa umdeildu áætlun að veruleika og þær áskoranir sem á vegi hans urðu. Hann heldur því fram að COVID-19 heimsfaraldurinn hafi afhjúpað hversu ósjálfbær hefðbundin fræðileg útgáfa er í raun og veru.

Þetta er saga um útgáfu með opnum aðgangi – hvers vegna hún skiptir máli núna og til framtíðar.

Í heimi, þar sem upplýsingar hafa aldrei verið jafn aðgengilegar og svör eru fáanleg með einum músarsmelli, erum við hungraðari í staðreyndir en nokkru sinni fyrr – það hefur Covid-19 kreppan leitt í ljós. Samt koma greiðsluveggir sem settir eru upp af margmilljarða dollara útgáfufyrirtækjum  enn í veg fyrir að milljónir manna fái aðgang að gagnreyndri, vísindalegri þekkingu – og traust almennings á vísindum er í hættu.